FH Westfjords Restaurant
Veitingastaður
Fosshotel Westfjords Superior Double or Twin Room
Superior Double eða Twin Herbergi
Fosshotel Westfjords exterior
Fosshótel Vestfirðir
Fosshotel Westfjords exterior
Fosshotel Vestfirðir
FH Westfjords Reception
Gestamóttaka
FH Westfjords Lobby
Gestamóttaka
FH Westfjords Suite
Svíta
FH Westfjords TRPL
Þriggjamanna Herbergi
FH Westfjords Restaurant
Veitingastaður
Fosshotel Westfjords Superior Double or Twin Room
Superior Double eða Twin Herbergi
Mynd 1 af 0

Fosshótel Vestfirðir

HÓTEL
  • Hotels in Reykjavík
  • Hotels in North and East
  • Hotels in South
  • Hotels in West

Fosshótel Vestfirðir

Fosshótel Vestfirðir er fallegt hótel á Patreksfirði, þar sem stutt er í stórkostlegar náttúruperlur.

Vestfirðir eru þekktir fyrir stórbrotið landslag og ósnortna náttúru. Fosshótel Vestfirðir er fallega innréttað og glæsilegt þriggja stjörnu hótel á Patreksfirði. Þaðan er stutt í stórkostlegar náttúruperlur eins og Látrabjarg, Rauðasand og fossinn Dynjanda.

Eftir langan dag er gott að setjast niður á veitingastað hótelsins, sem sérhæfir sig í matreiðslu á fersku sjávarfangi og afurðum úr sveitinni. 

Herbergi

40 stílhrein og falleg herbergi sem bjóða ýmist upp á sjávar- eða fjallaútsýni.

Á hótelinu er boðið upp á 5 tegundir af herbergjum allt frá einstaklingsherbergjum til svítu. Öllum herbergjum fylgja sér baðherbergi, ókeypis þráðlaus nettenging, ísskápur, sími, dagleg þrif og fleira. Við bjóðum einnig upp á herbergi fyrir hreyfihamlaða ásamt samtengjanlegum herbergjum sem henta vel fyrir fjölskyldur.

Sjá nánar

Veitingastaður

Huggulegur veitingastaður við sjóinn í hjarta Patreksfjarðar

Megináhersla veitingastaðarins er ferskt sjávarfang úr firðinum ásamt afurðum úr nærliggjandi sveitum. Veitingastaðurinn er tilvalinn til þess að slaka á eftir annasaman dag á Vestfjörðunum.

sjá nánar

Svör við algengum spurningum

  • Innritun er eftir kl 15:00 og útritun er fyrir kl 12:00. 

  • Snemmbúin og síðbúin innritun er í boði gegn vægu gjaldi en tekur ávallt mið af bókunarstöðu hótelsins hverju sinni og birtist þá sem valmöguleiki í tölvupósti sem gestir fá nokkrum dögum fyrir komu. Einnig er hægt að hafa samband við hótelið.

  • Ef bókað er á okkar vef og greitt við komu, þá er hægt að afbóka eða breyta bókun allt að 48 klst. fyrir komu í gegnum link sem fylgir með bókunarstaðfestingu. 

    Athugið að verð og framboð kann að hafa breyst.

  • Morgunverður er í boði frá kl. 7:00 til kl. 10:00.

  • Já, hundar eru velkomnir á hótelið. Takmarkað magn herbergja er í boði á hverju hóteli fyrir sig og mikilvægt að taka fram þegar gisting er bókuð að hundar eru með í för. Hægt er að kynna sér skilmála hér.

  • Já, bílastæði eru fyrir framan hótelið. 

  • Já.

  • Já, það eru hleðslustöðvar fyrir framan hótelið. 

  • Nei, hótelið er opið 1. maí - 15. okt.

  • Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti 
    vantað meðan á dvöl stendur.

  • Hjá Íslandshótelum leggjum við mikla áherslu á sjálfbærni og að tryggja næði gesta okkar. Markmið okkar er að draga úr umhverfisáhrifum starfseminar með því að lágmarka notkun á óþarfa hreinsiefnum og 
    vatni. Þetta þýðir að starfsfólk okkar munu eingöngu fara inn í herbergi gesta til að þrífa og fylla á, sé þess óskað.

    Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti vantað meðan á dvöl stendur.Við vonum að með þessu upplifir þú persónulegri og afslappaðari dvöl hjá okkur.

    Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að hafa samband við starfsfólk okkar.

    Fyrir nánari upplýsingar um sjálfbærnistefnu og Green Key vottun Íslandshótela, smelltu hér.

  • Frá og með 1. janúar 2024 verður lagður gistináttaskattur að upphæð 666 ISK á hvert herbergi / hverja gistinótt. Skatturinn verður innheimtur við komu á hótel.