Skíðagöngunámskeið á Húsavík
Fosshótel Húsavík býður upp á gistingu og skíðagöngunámskeið í febrúar og mars.
Við þökkum fyrir frábærar viðtökur síðastliðna vetur og endurtökum nú leikinn!
Fosshótel Húsavík er vel útbúið og frábærlega staðsett hótel í hjarta Húsavíkur. Í göngufæri við höfnina og aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá skíðasvæðinu og GeoSea sjóböðunum þar sem þú nýtur náttúrunnar á einstakan hátt.
Skíðagöngunámskeiðin verða frá föstudegi til sunnudags helgarnar 3.-5. febrúar, 10.-12. febrúar og 3.-5. mars í samstarfi við skíðakennarana Auði Kristínu Ebenezerdóttur og Óskar Jakobsson en þau eru þaulreyndir skíðagönguþjálfarar og leiðbeinendur. Æfingar fara fram á skíðasvæði Húsavíkur á Reykjaheiði sem er rétt vestan Höskuldsvatn í um 7 km. fjarlægð frá Húsavík. Alls verða fjórar æfingar; ein á föstudeginum, tvær á laugardeginum og ein á sunnudeginum. Æfingarnar eru hugsaðar fyrir alla.
Tilboðsverð:
Gisting og skíðagöngunámskeið verð frá 68.450 kr á mann miðað við tvo í herbergi.
Gisting og skíðagöngunámskeið verð 80.900 kr. miðað við einn í herbergi.
Innifalið:
- Gisting í tvær nætur með morgunverði
- Skíðagöngunámskeið alla þrjá dagana
- Kennsla í umhirðu búnaðar
- Tveggja rétta kvöldverður föstudagskvöld
- Hádegisverður laugardag
- Þriggja rétta kvöldverður laugardagskvöld
- Aðgangur í Sjóböðin í eitt skipti að eigin vali föstudag til sunnudags
Hvað skal koma með?
Gönguskíði, stafi, skó, útivistarfatnað og góða skapið. Akstur til og frá æfingastað er ekki innifalið í tilboðinu.
Dagsetningar
10. - 12. febrúar
3. - 5. mars
Skilmálar
- 25% óendurkræft staðfestingargjald er skuldfært af kortinu sem er skráð þegar bókun er gerð
- Eftirstöðvar greiðast á hótelinu
- Hægt að breyta bókun eða afbóka allt að 14 dögum fyrir komu en staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt
- Ef námskeiðið fellur niður sökum veðurs eða af öðrum ástæðum þá er endurgreitt að fullu.