Íslandshótel hefja kolefnisjöfnun
Íslandshótel hefur hafið kolefnisjöfnun í samstarfi við Kolvið (Iceland Carbon Fund).

Með undirritun samstarfssamningsins stígur fyrirtækið mikilvægt skref í áframhaldandi loftslagsaðgerðum sínum og styður jafnframt við skuldbindingu sína við Glasgow-yfirlýsinguna um loftslagsaðgerðir í ferðaþjónustu, það er að helminga losun fyrir árið 2030 og ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050.
Í samstarfi við Kolvið stefna Íslandshótel að því að jafna að minnsta kosti 50% af heildarlosun fyrirtækisins frá og með árinu 2025, með aðgerðum sem koma til framkvæmda á árinu 2026. Verkefnin fela í sér stuðning við skógrækt á Íslandi sem stuðlar að langtímabindingu kolefnis og endurheimt vistkerfa. Samstarfið er hugsað til lengri tíma samhliða áframhaldandi aðgerðum fyrirtækisins til að draga úr losun í rekstri.
Sjálfbærni er sameiginlegt verkefni. Við erum þakklát starfsfólki okkar fyrir áframhaldandi skuldbindingu til loftslagsaðgerða og stolt af því að leggja okkar af mörkum til að efla sjálfbærni í ferðaþjónustu.