Fara á efnissvæði

Sannkölluð matarástríða

Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á úrval af réttum sem eru eldaðir með besta hráefninu og valdir úr ferskasta hráefninu.

Fröken Reykjavík kitchen & Bar
Fröken Reykjavík kitchen & Bar
Beergarden at Fosshotel Reykjavík
Grand Brasserie at Hotel Reykjavík Grand
Haust Bistro
Haust Bistro
Haust Restaurant Venue
Mynd 1 af 7
Fröken Reykjavík kitchen & Bar

Veitingastaðirnir okkar

Fröken Reykjavík kitchen & Bar
Fröken Reykjavík kitchen & Bar
Mynd 1 af 11

Fröken Reykjavík Kitchen & Bar

Glæsilegur veitingastaður á Hótel Reykjavík Sögu.

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, sem keppir fyrir íslands hönd í hinni virtu kokkakeppni Bocuse d´or, er yfirmatreiðslumeistari á Fröken Reykjavík.

Sjá heimasíðu
Grand Brasserie at Hotel Reykjavík Grand
Grand Brasserie á Hótel Reykjavík Grand
Mynd 1 af 2

Grand Brasserie

Grand Brasserie er nútímalegur og glæsilegur veitingastaður þar sem hægt er að njóta fyrsta flokks matargerðarlistar.

Veitingastaðurinn er opinn alla daga vikunnar og býður upp á hádegis- og kvöldverðarseðil. 

Sjá nánar
Beer Garden  at Fosshotel Reykjavik
Bjórgarðurinn á Fosshótel Reykjavík
Mynd 1 af 6

Bjórgarðurinn

Bjórgarðurinn á Fosshótel Reykjavík er samkomustaður allra bjórunnenda og þeirra sem þykir gott að borða góðan mat.

Á Bjórgarðinum getur þú gengið að því vísu að fá alltaf góðan bjór, enda bjóðum við ótrúlegt úrval úr öllum áttum, bæði á krana og flöskum. Mikil áhersla er lögð á árstíðarbundinn bjór og samstarf við innlend brugghús. Við sérhæfum okkur í að para saman mat og bjór enda teljum við að bjór upphefji allar máltíðir.

Sjá heimasíðu
Haust Bistro
Haust Bistro
Mynd 1 af 11

Haust Bistro

Haust Bistro bíður upp á léttan matseðil alla daga frá hádegi og fram á kvöld.

Á Haust Bistro bjóðum við upp á fjölbreytt úrval af ferskum salötum, dásamlegum pastaréttum og ýmsum öðrum girnilegum réttum. Hvort sem þig langar í svalandi drykk, fullkomlega bruggað kaffi eða saðsaman rétt, þá er eitthvað á matseðlinum fyrir alla. Komdu og njóttu notalegrar og hlýlegrar stemningar þar sem bragð og gæði eru alltaf í forgrunni.

Sjá heimasíðu

DOM Brasserie & Bar

Íslensk hráefni og alþjóðleg áhrif í hlýlegu umhverfi.

DOM Brasserie & Bar er veitingastaður og bar á Hilton Reykjavík. Þar er lögð áhersla á vandaða matargerð þar sem íslensk hráefni, klassískar aðferðir og alþjóðleg áhrif mætast. Fjölbreyttur matseðill og vel valdir drykkir gera DOM að góðum stað fyrir hádegisverð, kvöldverð eða notalega stund yfir drykk.

Sjá heimasíðu

Lauf Bistro

Góður matur frá morgni til kvölds á Hótel Reykjavík Öskju.

Lauf Bistro býður upp á fjölbreyttar veitingar fyrir ólík tilefni dagsins. Hér má njóta góðs matar, allt frá girnilegum hlaðborðum yfir í rétti af matseðli eða einfaldlega kíkja við í drykk. Um helgar og á almennum frídögum er brunch á boðstólum og tilvalið að gera sér dagamun.

Sjá heimasíðu