Fara á efnissvæði

Hótel Reykjavík Saga

Mynd 1 af 9

Einkasamkvæmi og afmæli á Hótel Reykjavík Sögu

Garðskálinn á Fröken Reykjavík er notalegt og hlýlegt rými sem hentar einstaklega vel fyrir afmæli og sem önnur einkasamkvæmi. Miðlæg staðsetningin gerir gestum jafnframt kleift að halda kvöldinu áfram í miðborginni.

Rými sem heldur vel utan um veisluna

Garðskálinn hentar vel fyrir minni og meðalstór tilefni þar sem nánd og góð stemning skipta máli. Salurinn er settur upp í samræmi við óskir ykkar og eðli veislunnar, hvort sem um er að ræða formlegt borðhald eða afslappaða samveru.

Á sumrin er hægt að opna út í garð og skapa létta og fallega umgjörð sem gefur tilefninu sérstakan svip.

Veitingar og framkvæmd í góðum höndum

Veitingar eru í höndum teymis Fröken Reykjavík þar sem lögð er áhersla á vandaða matargerð og fallega framsetningu. Í samráði við ykkur er veislan mótuð þannig að hún hæfi tilefninu og gestunum.

Reynslumikið starfsfólk sér um skipulag og framkvæmd svo allt gangi vel fyrir sig og þið getið einbeitt ykkur að því sem skiptir máli - að njóta stundarinnar með fólkinu ykkar.

Gestum stendur einnig til boða gisting á Hótel Reykjavík Sögu.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting