Fara á efnissvæði

Fosshótel Stykkishólmur

Mynd 1 af 8

Árshátíðir og fyrirtækjaveislur á Fosshótel Stykkishólmi

Á Fosshótel Stykkishólmi fær árshátíðin notalega og trausta umgjörð. Hótelið er staðsett á Snæfellsnesi, í hjarta Stykkishólms, sem er í um tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá Reykjavík.

Árshátíð út á landi býður upp á aðra nálgun þar sem hópurinn kemur saman í nýju umhverfi og fær rými til að njóta samveru utan daglegs starfs.

Hólmurinn

Hólmurinn er veislusalur hótelsins og einn stærsti viðburðasalurinn á Snæfellsnesi. Salurinn rúmar allt að 160 gesti í sæti við langborð og allt að 250 í standandi móttöku.

Rýmið hentar jafnt hátíðlegu borðhaldi sem og kvöldskemmtun með skemmtiatriðum og dansi. Hægt er að aðlaga uppsetningu eftir umfangi og eðli kvöldsins, þannig að bæði nánd og heild haldist í jafnvægi.

Fagmennska og heildstæð upplifun

Reynslumikið starfsfólk aðstoðar við skipulag og framkvæmd viðburðarins og leggur áherslu á að allt gangi vel fyrir sig.

Veitingateymi hótelsins leggur metnað í vandaða matargerð og fallega framsetningu, og í samráði við ykkur er kvöldið mótað í takt við fyrirtækið og tilefnið. Veislusalur, veitingar og gisting fara saman á einum stað og tryggja þægilega og samfellda upplifun fyrir alla sem taka þátt.

Sé þess óskað er hægt að bjóða hópum sérkjör í gistingu, svo árshátíðin verði bæði vel heppnuð og þægileg fyrir alla sem taka þátt.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting