Fara á efnissvæði

Fosshótel Reykjavík

Mynd 1 af 8

Árshátíðir og fyrirtækjaveislur á Fosshótel Reykjavík

Á Fosshótel Reykjavík fær árshátíðin nútímalega og líflega umgjörð í hjarta borgarinnar. Hér sameinast rúmgóðir salir, faglegt skipulag og lífleg stemning sem setur tóninn fyrir kvöldið.

Fjölbreytt rými fyrir ólíka hópa

Hótelið býður upp á fjölbreytta og stílhreina sali sem henta bæði meðalstórum og fjölmennum árshátíðum. Rýmin má aðlaga að dagskrá kvöldsins hvort sem um er að ræða formlegt borðhald, skemmtiatriði, verðlaunaafhendingu eða dans fram á nótt.

Sveigjanleg uppsetning og góð tækniaðstaða styðja við heildarupplifunina og tryggja að kvöldið gangi smurt fyrir sig.

Veitingar frá Haust

Veitingar eru í höndum teymis Haust, þar sem áhersla er lögð á ferskt hráefni og fallega framsetningu. Í samráði við ykkur er matseðillinn mótaður í takt við tilefnið, hvort sem óskað er eftir hátíðlegu kvöldverðarboði eða léttari móttöku.

Fagmennska og skipulag

Reynslumikið starfsfólk fylgir ykkur í gegnum undirbúninginn og sér til þess að dagskráin haldist á réttri leið. Við leggjum áherslu á skýrt skipulag, gott flæði og þjónustu sem er til staðar án þess að vera áberandi.

Gisting og aðgengi

Fosshótel Reykjavík býður gott aðgengi og bílastæði fyrir gesti. Sé þess óskað er hægt að bjóða hópum sérkjör í gistingu, sem gerir fyrirtækjum kleift að sameina árshátíð og dvöl á einum stað.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting