Gullfoss
Fosshótel Reykjavík
Á Fosshótel Reykjavík bjóðum við fjölbreytta aðstöðu fyrir ráðstefnur, fundi og viðburði í hjarta Reykjavíkur. Salirnir henta jafnt fyrir minni fundi sem stærri samkomur og eru útbúnir nauðsynlegum tæknibúnaði og þráðlausu neti.
Reynslumikið teymi aðstoðar við undirbúning og framkvæmd viðburða og sér til þess að dagskrá, tæknimál og þjónusta gangi hnökralaust fyrir sig. Við bjóðum einnig fjölbreyttar veitingalausnir, allt frá kaffihléum til kvöldverða og móttaka, auk þægilegrar gistingar fyrir þá sem vilja sameina ráðstefnu og dvöl.
Með miðlægri staðsetningu, sveigjanlegri aðstöðu og persónulegri þjónustu leggjum við okkur fram um að skapa faglegt ráðstefnuumhverfi og góða upplifun fyrir bæði skipuleggjendur og gesti.
Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.
Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.
Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.