Fara á efnissvæði

Fosshótel Reykjavík

Gullfoss
Brúðkaupsveislur
Mynd 1 af 3

Brúðkaupsveislur á Fosshótel Reykjavík

Á Fosshótel Reykjavík fær brúðkaupsdagurinn nútímalega og hlýlega umgjörð í hjarta borgarinnar. Hér sameinast glæsileg rými, fagleg þjónusta og lífleg stemning sem gerir daginn bæði persónulegan og eftirminnilegan.

Rými fyrir litlar og stórar stundir

Hótelið býður fjölbreytta og stílhreina sali sem henta jafnt náinni veislu sem og stærri brúðkaupssamkomu. Hvort sem þið sjáið fyrir ykkur standandi móttöku, formlegt borðhald eða dans fram á kvöld, aðstoðum við ykkur við að móta daginn í takt við ykkar sýn.

Björt rými og sveigjanleg uppsetning skapa góða heild þar sem stemning og skipulag haldast í hendur.

Veitingar frá Haust

Veislan er hjartað í hátíðinni. Veitingastaðurinn Haust leggur metnað í ferskt hráefni og vandaða matargerð þar sem árstíðir og íslensk hráefni fá að njóta sín. Í samráði við ykkur er matseðillinn mótaður þannig að hann endurspegli tilefnið og ykkar smekk.

Faglegt skipulag og góð aðstaða

Reynslumikið teymi fylgir ykkur í undirbúningnum og tryggir að veislan gangi hnökralaust fyrir sig. Við leggjum áherslu á gott flæði, skýra dagskrá og þjónustu sem er til staðar án þess að vera áberandi.

Hótelið býður gott aðgengi og næg bílastæði fyrir brúðkaupsgesti. Fyrir þau sem vilja njóta kvöldsins til fulls er möguleiki á gistingu á hótelinu.

Þegar haldin er stærri brúðkaupsveisla býður Íslandshótel brúðarhjónum að gista á Fosshótel Reykjavík á brúðkaupsnóttinni.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting