Fara á efnissvæði

Fosshótel Stykkishólmur

Mynd 1 af 12

Einkasamkvæmi og afmæli á Fosshótel Stykkishólmi

Hvort sem um er að ræða stórafmæli, ættarmót eða annað tilefni býður Fosshótel Stykkishólmur upp á notalega og trausta umgjörð í hjarta bæjarins.

Hér getið þið safnað fjölskyldu og vinum saman í rými sem hæfir tilefninu, á meðan við sjáum um skipulag og framkvæmd svo þið getið notið stundarinnar til fulls.

Hólmurinn

Hólmurinn er veislusalur hótelsins og hentar jafnt minni samkvæmum sem og stærri veislum. Salurinn er settur upp í samræmi við óskir ykkar og eðli tilefnisins, hvort sem um er að ræða formlegt borðhald eða léttari samveru.

Við sjáum um framkvæmdina

Veitingateymi hótelsins leggur metnað í vandaða matargerð og fallega framsetningu. Í samráði við ykkur er matseðill og fyrirkomulag mótað þannig að það hæfi tilefninu og gestunum.

Reynslumikið starfsfólk sér um skipulag og framkvæmd svo allt gangi vel fyrir sig. Með veislusal, veitingum og gistingu á einum stað verður skipulagið einfaldara og upplifunin heildstæð.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting