Fara á efnissvæði

Fosshótel Vatnajökull

Fosshotel Vatnajokull Axlarfoss
Axlarfoss at Fosshotel Vatnajökull
Mynd 1 af 5

Árshátíðir og fyrirtækjaveislur á Fosshótel Vatnajökli

Á Fosshótel Vatnajökli fær árshátíðin rólega en eftirminnilega umgjörð við rætur Vatnajökuls, í stuttri akstursfjarlægð frá Höfn í Hornafirði.

Árshátíð út úr bænum gefur hópnum tækifæri til að stíga út úr daglegu umhverfi og koma saman í nýju samhengi. Slíkt skapar rými fyrir samveru, samtal og styrkari tengsl innan hópsins.

Axlarfoss – salur með útsýni

Axlarfoss er bjartur og nútímalegur veislusalur sem hentar vel fyrir minni og meðalstóra hópa. Salurinn rúmar allt að 56 gesti í sitjandi borðhaldi og allt að 104 í standandi móttöku.

Stórbrotið útsýni yfir Vatnajökul og útgengi á rúmgóðan pall gefa kvöldinu sérstakan svip. Þar er tilvalið að hefja dagskrána með fordrykk eða léttum veitingum þegar vel viðrar.

Fagmennska og heildstæð upplifun

Reynslumikið starfsfólk aðstoðar við skipulag og framkvæmd árshátíðarinnar og tryggir að allt gangi vel fyrir sig. Veislusalur, veitingar og gisting fara saman á einum stað og skapa þægilega og samfellda upplifun fyrir hópinn.

Veitingateymi hótelsins leggur áherslu á gæði og fallega framsetningu og í samráði við ykkur er kvöldið mótað í takt við fyrirtækið og tilefnið.

Sé þess óskað er hægt að bjóða hópum sérkjör í gistingu, sem einfaldar skipulagið og gerir gestum kleift að njóta kvöldsins til fulls.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting