Fara á efnissvæði

Fosshótel Húsavík

Fosshotel Húsavík Skjálfandi
Mynd 1 af 4

Árshátíðir og fyrirtækjaveislur á Fosshótel Húsavík

Á Fosshótel Húsavík fær árshátíðin sterka og faglega umgjörð í hjarta Norðurlands. Hér sameinast magvíslegir salir, reynsla af fjölbreyttum viðburðum og notalegt andrúmsloft sem hentar jafnt meðalstórum sem stórum hópum.

Skjálfandi – rými fyrir stóra viðburði

Skjálfandi er stærsti salur hótelsins og rúmar allt að 200 gesti í sæti. Rýmið hentar vel fyrir glæsilegar árshátíðir með formlegu borðhaldi, skemmtiatriðum og dansi fram á kvöld.

LED-lýsing í salnum má aðlaga að þema og stemningu kvöldsins og styður þannig við heildarupplifunina.

Þingey og minni rými

Þingey er hlýlegur salur á jarðhæð sem rúmar allt að 50 gesti í sæti eða 70 í standandi móttöku. Hann hentar vel fyrir meðalstóra hópa eða fyrirtæki sem kjósa persónulegri og nánari umgjörð.

Auk þess býður hótelið upp á fleiri sali sem hægt er að nýta eftir umfangi og eðli viðburðarins.

Fagmennska og heildstæð upplifun

Reynslumikið starfsfólk aðstoðar við skipulag og framkvæmd árshátíðarinnar og leggur áherslu á að allt gangi vel fyrir sig. Veislusalir, veitingar og gisting fara saman á einum stað og skapa heildstæða og þægilega upplifun fyrir gesti.

Veitingateymi hótelsins leggur metnað í vandaða matargerð og fallega framsetningu og í samráði við ykkur er kvöldið mótað í takt við fyrirtækið og tilefnið.

Sé þess óskað er hægt að bjóða hópum sérkjör í gistingu, sem einfaldar skipulagið og gerir gestum kleift að njóta kvöldsins til fulls.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting