Skjálfandi
Fosshótel Húsavík
Á Fosshótel Húsavík bjóðum við fjölbreytta aðstöðu fyrir ráðstefnur, fundi og viðburði í hjarta Húsavíkur. Hótelið býður upp á sex fundar- og ráðstefnusali sem rúma frá 8 upp í 350 gesti og henta vel fyrir allt frá vinnustofum og kynningum til stærri samkoma.
Reynslumikið teymi aðstoðar við undirbúning og framkvæmd viðburða og sér til þess að dagskrá, tæknimál og þjónusta gangi hnökralaust fyrir sig. Salirnir eru búnir nauðsynlegum tæknibúnaði og hægt er að aðlaga bæði uppsetningu og þjónustu að þörfum hvers hóps.
Við bjóðum einnig fjölbreyttar veitingalausnir og þægilega gistingu í miðbæ Húsavíkur, þar sem stutt er í bæði þjónustu og einstaka náttúru Norðurlands. Með sveigjanlegri aðstöðu, persónulegri þjónustu og hlýlegu andrúmslofti leggjum við okkur fram um að skapa góða upplifun fyrir bæði skipuleggjendur og gesti.
Já, bókun telst staðfest þegar 10% staðfestingargjald hefur verið greitt.
Nei, aðeins er hægt að leigja sal með veitingum.
Já, við tökum tillit til sérstakra þarfa. Látið okkur vita tímanlega svo við getum tryggt ánægjulega upplifun / gert viðeigandi ráðstafanir.