Fara á efnissvæði

Fosshótel Vatnajökull

Axlarfoss Conference Room at Fosshotel Vatnajökull
Axlarfoss at Fosshotel Vatnajökull
Mynd 1 af 7

Útskriftir og fermingaveislur á Fosshótel Vatnajökli

Fermingar- og útskriftardagurinn á að vera afslappaður og gleðilegur - dagur þar sem fjölskyldan kemur saman og nýtur samverunnar. Hjá okkur getið þið treyst því að skipulag og framkvæmd séu í góðum höndum svo þið getið einbeitt ykkur að því sem skiptir máli.

Axlarfoss – notalegt rými fyrir fjölskylduveislur

Axlarfoss er bjartur og aðlaðandi veislusalur sem hentar vel fyrir minni og meðalstórar fermingar- og útskriftarveislur. Salurinn er settur upp í samræmi við óskir ykkar og eðli dagsins, hvort sem um er að ræða kaffiveislu eða veglegra borðhald.

Útsýni yfir Vatnajökul og útgengi á pall gefa rýminu sérstakan svip og skapa fallegt umhverfi fyrir tímamótadaginn.

Við sjáum um smáatriðin

Veitingateymi hótelsins leggur áherslu á fjölbreytta matseðla sem höfða jafnt til yngri sem eldri gesta. Skipulag, uppsetning og tækniaðstaða eru útfærð af fagmennsku svo allt gangi hnökralaust fyrir sig.

Með veislusal, veitingum og aðstoð á einum stað verður undirbúningurinn einfaldari og dagurinn léttari fyrir fjölskylduna. Gott aðgengi og bílastæði gera gestum auðvelt að koma og njóta dagsins í þægilegu umhverfi.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting