Fara á efnissvæði

Hótel Reykjavík Grand

Brúðkaupsveislur
Háteigur conference room at Hotel Reykjavik Grand
Háteigur
Mynd 1 af 5

Brúðkaupsveislur á Hótel Reykjavík Grand

Á Hótel Reykjavík Grand fær brúðkaupsdagurinn verðuga umgjörð. Hér sameinast glæsilegir salir, fagleg þjónusta og áratuga reynsla af stórum viðburðum í umhverfi sem hæfir deginum. Áratuga reynsla af viðburðum, stórum sem smáum, tryggir skipulag sem heldur utan um smáatriðin. Faglegt teymi fylgir ykkur í undirbúningnum og tryggir að veislan gangi hnökralaust fyrir sig.

Stórir salir og fjölbreytt uppsetning

Hótel Reykjavík Grand er eitt stærsta og öflugasta viðburðahótel landsins og býður stílhreina og fjölbreytta sali sem henta jafnt náinni veislu sem og fjölmennu brúðkaupi. Aðstaðan gefur brúðhjónum kost á að velja á milli standandi móttöku með léttum veitingum eða formlegs borðhalds með dansi fram á kvöld. Lögð er áhersla á faglega skipulagningu og nákvæma framkvæmd þannig að brúðhjónin fái að njóta sín í hátíðlegu og traustu umhverfi.

Veitingar

Maturinn er hjarta brúðkaupsveislunnar. Veitingateymi hótelsins leggur metnað í gæða hráefni, faglega matreiðslu og glæsilega framsetningu. Matseðlar eru mótaðir í samráði við brúðhjón og áhersla lögð á að kvöldið flæði á eðlilegan og þægilegan hátt.

Þægindi á einum stað

Hótel Reykjavík Grand býður gott aðgengi og næg bílastæði fyrir brúðkaupsgesti. Fyrir þau sem vilja lengja gleðina er möguleiki á gistingu á hótelinu, svo kvöldið fái að líða mjúklega yfir í nýjan dag.

Þegar haldin er stærri brúðkaupsveisla býður Íslandshótel brúðarhjónum að gista á Hótel Reykjavík Grand á brúðkaupsnóttinni.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting