Fara á efnissvæði

Hótel Reykjavík Saga

Mynd 1 af 6

Brúðkaupsveislur á Hótel Reykjavík Sögu

Í hjarta miðbæjarins, við Hljómskálagarðinn og Tjörnina, býður veitingastaðurinn Fröken Reykjavík upp á hlýlega og persónulega umgjörð fyrir minni og meðalstórar brúðkaupsveislur. Í Garðskálanum skapast notalegt andrúmsloft þar sem samvera og góð stemning fá að njóta sín, í rými sem er bæði fágað og aðgengilegt.

Rými fyrir nána og persónulega veislu

Garðskálinn, sem er hluti af Fröken Reykjavík, rúmar allt að 50 manns í sæti eða allt að 80 manns í standandi veislu. Rýmið hentar jafnt formlegu borðhaldi sem léttari móttöku og býður upp á umhverfi þar sem gestir sitja þægilega saman og njóta samverunnar.

Á sumrin má opna út í garðinn sem gefur veislunni aukið rými og skapar létt og líflegt andrúmsloft - einstök borgarupplifun þar sem gróður og kyrrð mætast í miðjum miðbænum.

Veitingar undir stjórn Snædísar Xyza Mae Jónsdóttur

Matargerðin á Fröken Reykjavík er í höndum yfirmatreiðslumeistarans Snædísar Xyza Mae Jónsdóttur, sem keppir fyrir hönd Íslands í hinni virtu Bocuse d’Or kokkakeppni. Hún hefur verið hluti af íslenska kokkalandsliðinu og einnig þjálfað það og leggur metnað sinn í að skapa upplifun þar sem fagmennska, árstíðabundið hráefni og falleg framsetning fara saman.

Í samráði við brúðhjónin er matseðillinn mótaður þannig að hann endurspegli tilefnið og persónulegan smekk.

Hlýleg þjónusta í miðju borgarlífi

Faglegt teymi Fröken Reykjavík og Hótel Reykjavík Sögu fylgir ykkur í undirbúningnum og tryggir að veislan gangi hnökralaust fyrir sig. Markmiðið er að þið getið notið dagsins í notalegu og sögulegu umhverfi þar sem nýjar minningar verða til.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting