Svör við algengum spurningum
Íslandshótel má rekja aftur til ársins 1992 þegar Hótel Reykjavík var opnað við Rauðarárstíg 37. Hótelið opnaði með 30 herbergi og þrjátíu árum síðar eru 18 hótel og rétt tæplega 2.000 herbergi undir merkjum Fosshótela og Hótel Reyjavík. Fosshótel eru staðsett hringinn í kringum landið og Hótel Reykjavík er með 4 stjörnu hótel í Reykjavík fyrir ferðamenn og ráðstefnugesti sem vilja njóta glæsilegar aðstöðu og framúrskarandi þjónustu.
Okkar teymi samanstendur af fjölbreyttum hópi liðsmanna sem vinna saman að því markmiði að gefa af sér einstaka gestrisni um land allt. Við kunnum að meta alla reynslu og erum alltaf að leita að metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingum til að slást í hópinn. Sjá nánar hér.
Allt frá byrjun COVID-19 faraldursins hefur Íslandshótel lagt mikla áherslu á það að tryggja öryggi bæði gesta og starfsfólks. Íslandshótel vann náið með Sjúkratryggingum Íslands og Rauða Krossi Íslands með því að útvega aðstöðu fyrir sóttkví á lokuðum hótelum og hefur það samstarf reynst okkur afar vel til að innleiða nýja verkferla og þjálfun starfsfólks á öllum okkar hótelum.
Jafnframt er Íslandshótel þátttakandi í verkefni á vegum Ferðamálastofu sem byggir á erlendri fyrirmynd og ber heitið Hreint og öruggt / Clean & Safe. Þátttakan er loforð til okkar gesta um að þrifum og sóttvörnum sé sinnt af samviskusemi og að öllum reglum yfirvalda sé fylgt.
Innritun er eftir kl 15:00 og útritun er fyrir kl 12:00.
Snemmbúin og síðbúin innritun er í boði gegn vægu gjaldi en tekur ávallt mið af bókunarstöðu hótelsins hverju sinni og birtist þá sem valmöguleiki í tölvupósti sem gestir fá nokkrum dögum fyrir komu. Einnig er hægt að hafa samband við hótelið.
Það eru frí bílastæði á Hótel Reykjavík Grand sem og öllum okkar hótelum á landsbyggðinni. Fosshótel Baron, Fosshótel Lind og Fosshótel Rauðará bjóða upp á takmarkaðan fjölda ókeypis bílastæða. Á öðrum hótelum í Reykjavík eru bílastæði með gjaldskyldu og bílastæðahús í nágrenninu.
Já, það eru hleðslustöðvar á öllum hótelum okkar á landsbyggðinni og einnig á nokkrum hótelum í Reykjavík. Sjá nánar aðstöðu á hverju hóteli fyrir sig.
Íslandshótel bjóða upp á ráðstefnu og fundaraðstöðu sem á sér enga líka hér á landi. Aðstaðan hentar frábærlega fyrir ráðstefnur, sýningar, stóra sem smáa fundi, veislur, árshátíðir, fermingar, erfidrykkjur og fleira. Sjá nánar hér.
Hundar eru velkomnir á hótelin. Takmarkað magn herbergja er í boði á hverju hóteli fyrir sig og mikilvægt að taka fram þegar gisting er bókuð að hundar eru með í för. Sjá nánar hér.
Ef bókað er á okkar vef og greitt við komu, þá er hægt að afbóka eða breyta bókun allt að 48 klst. fyrir komu.
Athugið að verð og framboð kann að hafa breyst.
Þú getur keypt gjafabréf í gistingu eða spa hér á gjafabréfavefnum okkar.
Gjafabréfin okkar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár enda gjöf sem gleður og margir valmöguleikar í boði.
Því miður er ekki hægt að bóka beint á okkar vef með gjafabréfi.
Íslandshótel leggja metnað sinn í að sinna samfélagslegri ábyrgð og veita styrki til þarfra málefna og eru umhverfismál, forvarnarmál og líknarmál þar fremst í flokki.
Óskir þú eftir þrifum biðjum við þig vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða með dags fyrirvara. Þér er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti vantað meðan á dvöl stendur.
*ath þetta á ekki við á Hótel Reykjavík Sögu þar sem herbergisþrif eru framkvæmd daglega.
Hjá Íslandshótelum er mikil áhersla lögð á sjálfbærni og að tryggja næði gesta. Markmið okkar er að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar með því að lágmarka notkun á hreinsiefnum og vatni. Þetta þýðir að starfsfólk okkar mun eingöngu fara inn í herbergi gesta til að þrífa og fylla á, sé þess óskað.
Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða með dags fyrirvara ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti vantað á meðan á dvöl stendur.
Við vonum að með þessu upplifir þú persónulegri og ánægjulegri dvöl hjá okkur.
Við hjá Íslandshótelum leggjum mikla áherslu á þægindi og öryggi gesta okkar. Við ákveðnar aðstæður gæti starfsfólk okkar þurft að fara inn í herbergi, jafnvel þó að „ónáðið ekki“ skilti séu í notkun, m.a. vegna nauðsynlegs viðhalds og við framkvæmd á öryggistefnu okkar. Ef til þess kemur mun starfsfólk okkar banka og tilkynna koma sína áður en farið er inn í herbergi gesta.
Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að hafa samband við starfsfólk okkar.
Fyrir nánari upplýsingar um sjálfbærnistefnu og Green Key vottun Íslandshótela, smelltu hér.