Fara á efnissvæði

Hótel Reykjavík Saga

Mynd 1 af 7

Útskriftir og fermingaveislur á Hótel Reykjavík Sögu

Fermingar- og útskriftardagurinn er sérstök stund í lífi fjölskyldunnar. Í Garðskálanum á Fröken Reykjavík, bjóðum við upp á hlýlega og persónulega umgjörð þar sem fjölskylda og vinir geta komið saman og notið dagsins í góðri samveru.

Notalegt rými fyrir tímamót

Garðskálinn hentar vel fyrir minni og meðalstórar veislur þar sem nánd og stemning skipta máli. Salurinn er settur upp í samræmi við óskir ykkar og eðli dagsins, hvort sem um er að ræða kaffiveislu eða veglegra borðhald.

Á sumrin er hægt að opna út í garð og skapa létta og fallega umgjörð sem gefur deginum sérstakan svip.

Við sjáum um framkvæmdina

Veitingar eru í höndum teymis Fröken Reykjavík þar sem lögð er áhersla á vandaða matargerð og fallega framsetningu. Í samráði við ykkur er veislan mótuð þannig að hún hæfi tilefninu og gestunum.

Reynslumikið starfsfólk sér um skipulag og framkvæmd svo dagurinn gangi vel fyrir sig og fjölskyldan geti einbeitt sér að því að njóta stundarinnar.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting