Styrktarbeiðnir

Íslandshótel leggja metnað sinn í að sinna samfélagslegri ábyrgð og veitir styrki til þarfra málefna. Umhverfismál, forvarnarmál og líknarmál eru þar fremst í flokki.

Sem dæmi um styrktarsamninga sem Íslandshótel hafa gert undanfarin ár má nefna samstarf okkar við Handknattleikssamband Íslands, Íþróttasamband fatlaðra, Golfsamband Íslands og Save Travel sem er slysavarnarverkefni á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjarga. Einnig hafa meðal annars verið veittir styrkir til Kvennaathvarfsins, Neistans, Félags Heyrnalausra og Mæðrastyrksnefndar. 

Ljóst er að við getum ekki styrkt alla sem sækja um og tekið skal fram að ekki eru veittir styrkir til einstaklinga (til náms eða íþrótta).

Allir sem óska eftir stuðningi eða styrk frá Íslandshótelum til verkefna eða viðburða, hvort sem það er í formi gjafabréfa eða kaupa á auglýsingum og styrktarlínum, eru beðnir að fylla út reitina hér að neðan.

Við förum yfir umsóknir einu sinni í mánuði. Ef skilafrestur er styttri en mánuður er umsókn sjálfkrafa hafnað og viðkomandi bent á að hafa samband tímanlega næst.