Fara á efnissvæði

Hótel Reykjavík Grand

Háteigur conference room at Hotel Reykjavik Grand
Háteigur Reception at Hotel Reykjavik Grand
Miðgarður at Hotel Reykjavik Grand
Mynd 1 af 4

Ráðstefnur á Hótel Reykjavík Grand

Hótel Reykjavík Grand er eitt helsta ráðstefnuhótel landsins og býður upp á fjölbreytta aðstöðu fyrir fundi, ráðstefnur og stærri viðburði. Salir á borð við Miðgarð og Háteig, ásamt fleiri funda- og viðburðarýmum, henta vel fyrir allt frá vinnustofum og kynningum til umfangsmikilla ráðstefna. Með gistingu, veitingum og ráðstefnuaðstöðu á sama stað verður skipulag einfaldara og þægilegra fyrir bæði skipuleggjendur og gesti.

Reynslumikið teymi vinnur náið með skipuleggjendum að því að tryggja faglega framkvæmd þar sem dagskrá, tæknimál, veitingar og þjónusta falla vel saman. Við bjóðum einnig fjölbreyttar veitingalausnir, allt frá kaffihléum til kvöldverða og móttaka, ásamt þægilegri gistingu sem skapar góða heildarupplifun fyrir ráðstefnugesti.

Hótelið er í áframhaldandi uppbyggingu og með fyrirhugaðri stækkun árið 2028 mun ráðstefnu- og fundaraðstaða stækka verulega ásamt fjölgun herbergja. Það gerir enn stærri viðburði mögulega þar sem gisting, dagskrá og samvera fara fram á sama stað.

Á Hótel Reykjavík Grand leggjum við áherslu á fagmennsku, góða þjónustu og þægindi. Með fjölbreyttri aðstöðu og reynslumiklu teymi sköpum við umhverfi sem stuðlar að vel heppnuðum ráðstefnum og góðri upplifun gesta. 

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting