Ráðstefnusalur 1
Hótel Reykjavík Askja
Á Hótel Reykjavík Öskju bjóðum við fjölbreytta aðstöðu fyrir ráðstefnur, fundi og viðburði í rólegu umhverfi við Öskjuhlíð. Salirnir eru sveigjanlegir og henta jafnt fyrir vinnustofur, kynningar og stærri samkomur, auk þess sem hótelið býður upp á bíósal fyrir stærri hópa.
Með gistingu, fundaraðstöðu og þjónustu á sama stað verður skipulag viðburða einfaldara. Reynslumikið teymi sér til þess að dagskrá, tæknimál, veitingar og þjónusta gangi hnökralaust fyrir sig.
Við bjóðum fjölbreyttar veitingalausnir, þægilega gistingu og spa sem gerir ráðstefnugestum kleift að slaka á eftir annasaman dag. Með faglegri þjónustu, hlýlegu andrúmslofti og sveigjanlegri aðstöðu leggjum við okkur fram um að skapa góða upplifun fyrir bæði skipuleggjendur og gesti.