Ráðstefnusalur 1 er 135 m² að stærð og býður upp á hlýlegt og notalegt umhverfi fyrir fundi, fyrirlestra og kynningar. Hlýir litatónar og mild lýsing skapa þægilega stemningu þar sem auðvelt er að einbeita sér að dagskránni. Salurinn rúmar allt að 110 gesti í bíóuppsetningu og hentar vel fyrir málstofur, viðskiptafundi og minni ráðstefnur.
Í salnum er skjávarpi og sýningartjald ásamt ræðupúlti með hljóðnema og þráðlausu neti. Salurinn er vel staðsettur með helstu þjónustu hótelsins innan seilingar. Reynt starfsfólk aðstoðar við skipulagningu, tæknimál og veitingar svo allt gangi vel fyrir sig.
Útfærslumöguleikar á sal
Tækjabúnaður sem er innifalinn í salarleigu
Spurt og svarað
-
- Skjávarpi/skjár og sýningartjald
- Púlt og hljóðnemi
- Wi-Fi
- Hljóðkerfi fyrir talað mál
- Þrif og þjónusta
- Uppsetning: bíósalur
-
Já, hægt er að fá auka tæknibúnað gegn gjaldi. Vinsamlegast hafið samband fyrir nánari upplýsingar.