Fara á efnissvæði

Hótel Reykjavík Askja

Ráðstefnur, fundir og viðburðir

Ráðstefnur, fundir og viðburðir

Hótel Reykjavík Askja býður upp á fjölbreytta aðstöðu fyrir fundi, ráðstefnur, fyrirtækjaviðburði og veislur. Á hótelinu eru níu fundar-, ráðstefnu- og viðburðasalir af mismunandi stærðum sem henta fyrir allt frá smærri fundum og námskeiðum til stórra ráðstefna, árshátíða og einkasamkvæma. Hægt er að sameina nokkra sali og laga uppsetningu þeirra að þörfum hvers viðburðar, hvort sem um er að ræða formlega dagskrá, hátíðarkvöld eða aðra samkomu.

Salirnir bjóða upp á fjölbreytta uppsetningarmöguleika og geta stærstu rýmin tekið á móti allt að 500 gestum í standandi boði. Á staðnum er aðstaða fyrir kynningar og fundi ásamt veitingaþjónustu sem hægt er að laga að tilefninu. Reynt starfsfólk aðstoðar við undirbúning og skipulagningu, allt frá uppsetningu sala og tæknimálum til veitinga og framkvæmdar viðburðarins.

Hótelið er staðsett við Öskjuhlíð í Reykjavík og býður upp á þægilega umgjörð þar sem fundir, ráðstefnur og veislur geta farið fram undir sama þaki. Einnig er hægt að nýta gistiaðstöðu hótelsins fyrir gesti sem sækja viðburði yfir fleiri en einn dag.

Fundarsalir

9

Stærð í m2.

25-360

Hámarksfjöldi

500

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting