Fara á efnissvæði
Hotel Reykjavík Askja Exterior
Hotel Reykjavík Askja
Hotel Reykjavík Askja Lobby
Hotel Reykjavík Askja Lobby
Hotel Reykjavík Askja Lobby
Hotel Reykjavík Askja Lobby
Hotel Reykjavik Askja Lauf Bistro
Hotel Reykjavik Askja Lauf Bistro
Hotel Reykjavik Askja Lauf Bistro
Hotel Reykjavik Askja Standard Double
Hotel Reykjavik Askja Suite
Hotel Reykjavik Askja Suite
Mynd 1 af 13
Hótel Reykjavík Askja

Hótel Reykjavík Askja

Hótel Reykjavík Askja

Íslandshótel tók við rekstri hótelsins þann 1. september 2026 og mun það starfa undir nafninu Hótel Reykjavík Askja.
 
Hótel Reykjavík Askja er vel staðsett fjögurra stjörnu hótel í grænu og friðsælu umhverfi við Öskjuhlíð. Þaðan er stutt í Nauthólsvík, Perluna, Háskólann í Reykjavík og innanlandsflugvöllinn, en miðborg Reykjavíkur er jafnframt innan seilingar. 

Á hótelinu eru 220 herbergi, fjölbreytt funda- og ráðstefnuaðstaða, veitingastaðurinn Lauf Bistro, bar, spa og heilsurækt. Hótelið hentar því jafnt einstaklingum, fjölskyldum, hópum og fyrirtækjum sem vilja góða aðstöðu í rólegu umhverfi nálægt miðborginni.

Herbergi

Hótel Reykjavík Askja býður upp á 220 þægileg herbergi í fjölbreyttum stærðum, allt frá standard herbergjum upp í rúmgóðar svítur. Herbergin eru vel búin og henta jafnt styttri borgardvöl sem lengri heimsóknum. Öll herbergi eru með sérbaðherbergi, sjónvarpi, ókeypis Wi-Fi, te- og kaffiaðstöðu, litlum kæli, skrifborði og öryggishólfi.

Sjá nánar
Reykjavik Spa

Reykjavík Spa Askja

Gefðu þér tíma til að slaka á og njóta augnabliksins. Reykjavík Spa Askja er notalegt athvarf þar sem hlýlegt umhverfi og afslöppuð stemning skapa kjöraðstæður til að hvílast og endurnæra líkama og sál.

Sjá meira

Lauf Bistro

Lauf Bistro er staðsett á Hótel Reykjavík Öskju, þar sem góður matur og notaleg stemning setja tóninn.

Boðið er upp á fjölbreytt úrval veitinga yfir daginn, allt frá ríkulegu morgunverðarhlaðborði og réttum af barseðli til veglegs kvöldverðarhlaðborðs. Um helgar og á rauðum dögum er brunch á boðstólum, tilvalið tækifæri til að koma saman yfir góðum mat og njóta stundarinnar.

Sjá nánar

Svör við algengum spurningum