Fara á efnissvæði

Fosshótel Vatnajökull

Axlarfoss at Fosshotel Vatnajökull
Mynd 1 af 4

Brúðkaupsveislur á Fosshótel Vatnajökli

Við rætur Vatnajökuls, í stuttri akstursfjarlægð frá Höfn í Hornafirði, býður Fosshótel Vatnajökull upp á einstaka og eftirminnilega umgjörð fyrir brúðkaupsdaginn. Hér mætast víðáttumikil fjallasýn og rólegt umhverfi sem gefur deginum sérstakan svip.

Axlarfoss – salur með útsýni

Axlarfoss er glæsilegur og bjartur veislusalur sem hentar vel fyrir minni og meðalstórar brúðkaupsveislur. Salurinn rúmar allt að 56 gesti í sitjandi veislu og allt að 104 í standandi móttöku.

Stórfenglegt útsýni yfir Vatnajökul skapar hátíðlega og rómantíska umgjörð. Frá salnum er útgengt á rúmgóðan pall þar sem tilvalið er að bjóða upp á drykki og léttar veitingar þegar vel viðrar.

Veitingar

Veitingar frá veitingastað hótelsins eru unnar með áherslu á gæði og fallega framsetningu. Í samráði við brúðhjónin er matseðillinn mótaður þannig að hann endurspegli tilefnið og þeirra óskir.

Faglegt teymi okkar fylgir ykkur í undirbúningnum og tryggir að veislan gangi hnökralaust fyrir sig.

Gisting og aðgengi

Faglegt teymi aðstoðar einnig við skipulagningu gistingar fyrir gesti ef þess er óskað, svo veislusalur, veitingar og gisting fari saman á einum stað. Nálægðin við Höfn í Hornafirði gerir aðgengi gott fyrir gesti, hvort sem þeir koma af Suðurlandi eða lengra að.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting