Fara á efnissvæði

Fosshótel Húsavík

Fosshotel Húsavík Skjálfandi
Mynd 1 af 2

Brúðkaupsveislur á Fosshótel Húsavík

Á Fosshótel Húsavík skapast hlý og eftirminnileg umgjörð fyrir brúðkaupsdaginn, í fallegum sjávarbæ þar sem norðlenskt andrúmsloft og nálægð við hafið setja svip á stundina.

Hótelið býður upp á eina umfangsmestu veisluaðstöðu á Norðurlandi og hentar jafnt minni samkomum sem og stærri brúðkaupsveislum.

Skjálfandi – rými fyrir stóra daga

Skjálfandi er stærsti salur hótelsins og rúmar allt að 200 gesti í sæti. Rýmið er bjart og rúmgott og býður upp á glæsilega umgjörð fyrir hátíðlega brúðkaupsveislu.

LED-lýsing í salnum má aðlaga að þema dagsins og stemningu kvöldsins og skapar þannig persónulegt og fallegt andrúmsloft.

Auk þess býður hótelið upp á fleiri sali sem hægt er að nýta eftir umfangi og eðli dagsins.

Veitingar

Veitingar frá veitingastað hótelsins eru unnar með áherslu á gæði og fallega framsetningu. Í samráði við brúðhjónin er matseðillinn mótaður þannig að hann endurspegli tilefnið og þeirra óskir.

Gisting og þægindi fyrir gesti

Faglegt teymi okkar aðstoðar ykkur við allan undirbúning veislunnar og styður einnig við skipulagningu gistingar fyrir gesti ef þess er óskað. Veislusalir, veitingar og gisting fara saman á einum stað og skapa þægilega og heildstæða umgjörð fyrir brúðhjón og gesti.

Fosshótel Húsavík býður gott aðgengi og frí bílastæði fyrir brúðkaupsgesti.

Þegar haldin er stærri brúðkaupsveisla býður Íslandshótel brúðarhjónum að gista á Fosshótel Húsavík á brúðkaupsnóttinni.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting