Fara á efnissvæði

Fosshótel Stykkishólmur

Mynd 1 af 6

Útskriftir og fermingaveislur á Fosshótel Stykkishólmi

Fermingar- og útskriftardagurinn á að snúast um gleði og samveru, ekki skipulag og undirbúning. Hjá okkur getið þið treyst því að umgjörð, veitingar og framkvæmd séu í góðum höndum, svo þið getið einbeitt ykkur að því að njóta dagsins með fjölskyldu og vinum.

Rými sem heldur vel utan um veisluna

Á Fosshótel Stykkishólmi bjóðum við upp á notalegan veislusal sem hentar jafnt minni sem stærri fjölskyldusamkomum. Salurinn er settur upp í samræmi við óskir ykkar og eðli veislunnar, hvort sem um er að ræða kaffiveislu eða veglegra borðhald.

Við sjáum um smáatriðin

Veitingateymi hótelsins leggur áherslu á vandaða matargerð og fallega framsetningu sem höfðar til gesta á öllum aldri. Skipulag, uppsetning og tækniaðstaða eru útfærð af fagmennsku svo allt gangi hnökralaust fyrir sig.

Með veislusal, veitingum og aðstoð á einum stað verður undirbúningurinn einfaldari og dagurinn léttari fyrir fjölskylduna.

Svör við algengum spurningum

Finndu sal fyrir þína veislu eða viðburð

Birting