Tilkynningar

Íslandshótel hafa sett verklagsreglur um vernd uppljóstrara í samræmi við lög nr. 40/2020, þar sem starfsfólk, birgjar og aðrir hagaðilar geta tilkynnt um mögulegt brot eða misferli.

Tilkynningar skulu sendar á netfangið abending@islandshotel.is, þar sem farið er með tilkynningu sem trúnaðarmál og tryggð er leynd um persónuupplýsingar. Móttakandi tilkynningar er regluvörður Íslandshótela.