Fosshotel Raudara Family Room
Fosshotel Raudara Fjölskylduherbergi
Fosshotel Rauðará lobby
Fosshotel Rauðará móttaka
Fosshotel Raudar Matsalur
Fosshotel Raudar Matsalur
FH Raudara Family Room
FH Raudara Fjölskylduherbergi
FH Raudara Standard Room
FH Raudara Standard Herbergi
Fosshotel Raudara Design Family Room
Fosshotel Raudara Design Fjölskylduherbergi
FH Raudara Exterior
FH Raudara Bygging
Fosshotel Raudara Family Room
Fosshotel Raudara Fjölskylduherbergi
Fosshotel Rauðará lobby
Fosshotel Rauðará móttaka
Mynd 1 af 0

Fosshótel Rauðará

HÓTEL
  • Hotels in Reykjavík
  • Hotels in North and East
  • Hotels in South
  • Hotels in West

Fosshótel Rauðará

Skemmtilega staðsett hótel á Rauðarárstígnum, í göngufæri við Laugaveginn og Klambratúnið.

Hótelið er þriggja stjörnu hótel á Rauðarársstígnum, í göngufæri við Laugaveginn og Klambratúnið. Á hótelinu er að finna 85 herbergi í fjórum herbergjatýpum; Single, Double, Twin og Triple. Öll neðsta hæðin var nýlega endurnýjuð og skartar nú hótelið glæsilegri morgunverðar aðstöðu ásamt fallegum Design herbergjum þar sem hrá hönnunin nýtur sín til fulls.

Bar hótelsins er opinn 17:00 - 00:00 alla daga vikunnar. 

Happy Hour alla daga 17:00 - 20:00.

Herbergi

Sjá nánar

Svör við algengum spurningum

  • Innritun er eftir kl 15:00 og útritun er fyrir kl 12:00. 

  • Snemmbúin og síðbúin innritun er í boði gegn vægu gjaldi en tekur ávallt mið af bókunarstöðu hótelsins hverju sinni og birtist þá sem valmöguleiki í tölvupósti sem gestir fá nokkrum dögum fyrir komu. Einnig er hægt að hafa samband við hótelið.

  • Ef bókað er á okkar vef og greitt við komu, þá er hægt að afbóka bókun allt að 48 klst. fyrir komu í gegnum link sem fylgir með bókunarstaðfestingu. 

    Athugið að ekki er hægt að breyta bókun.

  • Morgunverður er í boði frá kl. 7:00 til kl. 10:00.

  • Já, hundar eru velkomnir á hótelið. Takmarkað magn herbergja er í boði á hverju hóteli fyrir sig og mikilvægt að taka fram þegar gisting er bókuð að hundar eru með í för. Hægt er að kynna sér skilmála hér.

  • Já, bílakjallari með gjaldskyldu er á hótelinu, gjald er 2.000 kr sólarhringurinn sem greiðist í móttöku; ekki er hægt að fyrirframbóka bílastæðin. Það eru einnig gjaldfrjáls bílastæði í nágrenninu.

  • Já.

  • Hjá Íslandshótelum leggjum við mikla áherslu á sjálfbærni og að tryggja næði gesta okkar. Markmið okkar er að draga úr umhverfisáhrifum starfseminar með því að lágmarka notkun á óþarfa hreinsiefnum og 
    vatni. Þetta þýðir að starfsfólk okkar munu eingöngu fara inn í herbergi gesta til að þrífa og fylla á, sé þess óskað.

    Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti vantað meðan á dvöl stendur.Við vonum að með þessu upplifir þú persónulegri og afslappaðari dvöl hjá okkur.

    Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að hafa samband við starfsfólk okkar.

    Fyrir nánari upplýsingar um sjálfbærnistefnu og Green Key vottun Íslandshótela, smelltu hér.

  • Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti 
    vantað meðan á dvöl stendur.

  • Lagður er gistináttaskattur að upphæð 666 ISK á hvert herbergi / hverja gistinótt. Skatturinn er innheimtur við komu á hótel.