Veislur og viðburðir
Fyrir öll tilefni
Hvort sem tilefnið er gleðistund í faðmi fjölskyldu, hátíðlegur áfangi eða kveðjustund í kyrrð og virðingu, bjóðum við hjá Íslandshótelum aðstöðu og þjónustu sem rammar inn augnablikið.
Við leggjum áherslu á hlýlega og faglega umgjörð þar sem gestum líður vel frá fyrstu móttöku. Hvert rými hefur sinn karakter og við aðstoðum við að móta viðburðinn þannig að hann endurspegli tilefnið sjálft – stemninguna, fólkið og minningarnar sem verða til.
Við sinnum fjölbreyttum veislum og samkomum, allt frá brúðkaupum og árshátíðum til ferminga, útskrifta, afmæla, einkasamkvæma og erfidrykkja. Með vandaðri framkvæmd og nánu samstarfi tryggjum við að viðburðurinn verði í takt við tilefnið og væntingar ykkar.
Markmið okkar er að þú getir notið stundarinnar – við sjáum um umgjörðina.
Brúðkaupsveislur
Brúðkaupsdagurinn er einstakur dagur þar sem fjölskylda og vinir koma saman til að fagna ástinni
Við bjóðum hlýlega og faglega umgjörð fyrir brúðkaupsveislur, hvort sem þið kjósið borgarstemningu eða fallegt umhverfi á landsbyggðinni. Með reynslumiklu starfsfólki og vandaðri framkvæmd styðjum við ykkur í að skapa dag sem lifir áfram í minningunni.
Fermingarveislur og útskriftir
Við hjálpum þér að fagna mikilvægum tímamótum
Við bjóðum upp á hlýlega og notalega umgjörð þar sem fjölskylda og vinir koma saman og njóta fermingar- eða útskriftardagsins í góðri samveru. Um leið leggjum við áherslu á að dagurinn gangi vel fyrir sig, svo þið getið einbeitt ykkur að því sem skiptir máli.











