Jafnvægisvogin

Íslandshótel hlaut viðurkenningu og gullmerki Jafnvægisvogarinnar 2022.

Eliza Reid, forsetafrú afhenti verðlaunahöfum viðurkenningu við viðurkenningaathöfn sem sýnd var í beinni á RÚV.

Markmið Jafnvægisvogarinnar er að auka jafnvægi kynjanna í efstu lögum skipulagsheilda og að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis. Íslandshótel hefur tekið þátt í Jafnvægisvoginni og náð markmiðum verkefnisins frá upphafi, en þetta er fjórða árið í röð sem það tekur við slíkri viðurkenningu. Íslandshótel voru jafn framt fyrsta ferðaþjónustufyrirtækið sem hlaut viðurkenninguna.

Við hjá Íslandshótelum erum ákaflega stolt og ánægð með þessa viðurkenningu og munum halda áfram vegferð okkar fyrir jafnrétti og jöfnum tækifærum af fullum þunga inn í framtíðina.