Lykkjur í leyfi – Dekur prjónahelgi á Húsavík

Ró, sköpun og vellíðan

Lykkjur í leyfi – Dekur prjónahelgi á Húsavík með Thelmu Steimann og Nönnu frá Knittable

Dagsetning: 16.–18. október 2026

Eftir frábærar viðtökur og uppselt á methraða síðast snýr prjónahelgin Lykkjur í leyfi aftur, nú á Fosshótel Húsavík.

Kúplaðu þig út úr hversdagsleikanum og njóttu helgar þar sem prjón, samvera og vellíðan fléttast saman í einstöku umhverfi Húsavíkur.

Á þessari notalegu prjónahelgi leiða handverkskonurnar Thelma Steimann og Nanna frá Knittable þátttakendur inn í skapandi og afslappandi stemningu þar sem gefst tækifæri til að dýpka kunnáttuna, sækja innblástur og eiga ljúfar stundir með öðrum prjónaáhugakonum.

Helgin sameinar það besta úr tveimur heimum – ró og endurnæringu norðursins og skapandi samveru þar sem hver lykkja fær að njóta sín.

Allt til alls til að skapa, njóta og hlaða batteríin. 

Innifalið í ferð:

·        Tvær nætur á Fosshótel Húsavík

·         Morgunverðarhlaðborð

·         Aðgangur í Geo Sea sjóböðin

·         Fordrykkur

·         Kaffi, te og síðdegishressing

·         Tveggja rétta kvöldverður bæði kvöldin

·         Hádegisverður á laugardag

 

Matseðill

Dagskrá *

 

Verð:
Standard herbergi fyrir 2: 142.200 kr (71.100 kr á mann)
Standard herbergi fyrir 1: 88.900 kr.
Deluxe herbergi fyrir 2: 152.200 kr (76.100 kr á mann) 
Deluxe herbergi fyrir 1: 98.900 kr 
Fjölskylduherbergi fyrir 3: 222.100 kr (74.030 kr á mann) 
Fjölskylduherbergi fyrir 4: 274.800 kr (68.700 kr á mann)
Deluxe fjölskylduherbergi fyrir 3: 242.100 kr (80.700 kr á mann)
Deluxe fjölskylduherbergi fyrir 4: 294.800 (73.700 kr á mann)

 

Auka nótt:
Standard herbergi fyrir 2: 24.600 kr (12.300 kr á mann)
Standard herbergi fyrir 1: 21.300 kr

 

  • Í prjónastundunum verður boðið upp á örnámskeið og/eða kynningar sem gefa innsýn í prjónamenningu á svæðinu. 
  • Fyrir áhugasama hvetjum við til þess að taka með sér dýnu og jógaföt en Thelma mun hafa 1 klst jóga.
  • Kennarar: Nanna frá Knittable & Thelma Steimann
  • Ef lágmarks þátttaka næst ekki, áskiljum við okkur rétt til þess að fella niður ferðina og ferðin endurgreidd.
  • Lagður er gistináttaskattur að upphæð 800 ISK á hvert herbergi / hverja gistinótt. Skatturinn verður rukkaður aukalega við innritun / innheimtur við komu.
  • Auka nætur eru bókaðar beint hjá Fosshótel Húsavík (husavik@fosshotel.is), sem veitir einnig nánari upplýsingar um verð. 

* Dagskrá birt með fyrirvara um breytingar.

Innifalið:

Dekur prjónahelgi á Húsavík

Tilboðið gildir til

16. - 18. október 2026

Gildir aðeins á Fosshótel Húsavík.

 

Greitt við bókun, fæst ekki endurgreitt nema ferð sé aflýst.

Bóka núna