Slökun á Suðurlandi
Innifalið í tilboðinu er gisting í eina nótt fyrir tvo í standard herbergi ásamt glæsilegu morgunverðarhlaðborði og ísfloti í Fjallsárlóni á vegum Fjallsárlóns Iceberg Boat Tours.
Fosshótel Jökulsárlón er fjögurra stjörnu hótel staðsett á milli tveggja helstu náttúruperla landsins, Skaftafells og Jökulsárlóns. Hótelið býður upp á hlýleg og fallega hönnuð herbergi auk fyrsta flokks veitingastaðar, líkamsræktar og spa aðstöðu. Ísflot á Fjallsárlóni er nýjasta viðbótin í náttúruupplifun landsins. Þar geta gestir notið kyrrðarinnar á meðan þeir fljóta meðal ísjakanna á lóninu í einu fegursta landslagi Íslands. Tilboðið sameinar þægilega gistingu og einstaka upplifun.
Innifalið:
- Gisting í standard herbergi fyrir tvo
- Glæsilegt morgunverðarhlaðborð
- Ísflot (e. Ice Floating) í Fjallsárlóni
Verð:
Standard herbergi fyrir tvo: 49.900 kr
Uppfærsla í Ocean view herbergi: 5.500 kr
Til að bóka vinsamlegast sendið á glacier@fosshotel.is