Sjálfbærni

Íslandshótel starfar samkvæmt heildstæðri sjálfbærnisstefnu byggðri á UFS viðmiðum, sem taka til umhverfis, félagslegra þátta og stjórnarhátta. Markmið okkar er að skapa jákvæð og varanleg áhrif fyrir samfélagið, starfsfólk, gesti og eigendur með ábyrgum rekstri og gagnsæi.
Markvisst leggjum við áherslu á að lágmarka neikvæð áhrif á umhverfið og stuðla að velferð, réttindum og öryggi starfsfólks og samfélags. Á sama tíma tryggjum við ábyrgðarfulla stjórnarhætti og siðferðislega ábyrgð í rekstri félagsins.
Sjálfbærni er samþætt öllum ákvörðunum okkar og daglegum rekstri. Við leggjum áherslu á mælanleg markmið, gagnsæi í upplýsingagjöf og stöðugar umbætur í samræmi við alþjóðleg viðmið og kröfur.

Sjá sjálfbærnistefnu Íslandshótela
A wide-angle image of Jokulsarlon Lagoon in Iceland taken in February.

Sjálfbærniskýrsla Íslandshótela

Geyser

Umhverfisþættir

Við berum ábyrgð á umhverfinu – og við tökum það alvarlega.

Við viljum vera fyrirmynd í sjálfbærni og verndun náttúrunnar. Sem stærsta hótelkeðja á Íslandi leggjum við metnað í að draga úr kolefnislosun, hvetja til ábyrgðar og innleiða betri lausnir. Við einblínum á það sem skiptir máli og skilar raunverulegum árangri.

Sjá nánar