Stefna, gildi og framtíðarsýn

Laufin innihalda stefnu, gildi og framtíðarsýn Íslandshótela. Þau endurspegla það viðmót og þá þjónustu sem starfsfólk okkar leggur áherslu á að veita.

Við leggjum okkur fram um að veita framúrskarandi þjónustu, sýna frumkvæði og gera sífellt betur. Samskipti okkar byggja á gullnu reglunni og sameiginlegt markmið okkar er að fara fram úr væntingum gesta.

Laufin RGB 03 2026 IS
Icon Values Menning (1)

Menning

Við komum fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur.

Við breytum rétt
Menning okkar byggir á gullnu reglunni. Við sýnum samkennd og hlýju og komum fram af virðingu og heiðarleika. 

Okkur er umhugað um aðra
Gullna reglan er leiðarljós í samskiptum okkar við gesti, íbúa, samstarfsaðila, samstarfsfólk, samfélögin sem við erum hluti af og náttúruna sem umlykur okkur.

 

52736840609 3626Bee3ad 6K
52736841164 1C78b8cdb2 6K
Workplace
40933106863 B05b91d938 K
46983515515 617F6a683d K
Icon Values Gildi

Gildi

Fagmennska, samvinna, hugrekki og umhyggja

Við sýnum ávallt fagmennsku
Fagmennska er okkar hornsteinn. Við leitumst við að skara fram úr í öllum þáttum starfsins og bætum þjónustu okkar stöðugt. Hjá okkur starfar öflugt og vel þjálfað starfsfólk sem leggur sig fram um að sýna einstaka gestrisni.

Með samvinnu náum við árangri
Árangur okkar byggir á samvinnu. Við fögnum ólíkum sjónarhornum og stöndum saman sem ein heild. Við myndum sterk vina- og viðskiptasambönd, innan fyrirtækisins og utan þess. Saman tökumst við á við áskoranir, finnum nýjar lausnir, stuðlum að samheldni og jákvæðu starfsumhverfi.

Við erum alltaf hugrökk 
Við höfum hugrekki til að aðlagast, vaxa og vera í forystu. Við fögnum breytingum, tökum áhættur þegar þess þarf og tökumst á við áskoranir. Við könnum nýjar slóðir og prófum nýja hluti til að ná fram markmiðum okkar. Við sættum okkur ekki við stöðnun eða meðalmennsku.

Við sýnum umhyggju
Umhyggja minnir okkur á að gestrisni snýst fyrst og fremst um fólk, meðan ábyrgð okkar nær einnig til umhverfisins í kringum okkur. Hún felur í sér að skapa umhverfi þar sem allir finna fyrir athygli, stuðningi og virðingu. Umhyggjan byrjar hjá okkar eigin fólki, í daglegum samskiptum, og nær síðan til gesta og samfélagsins. 

Icon Values Hlutverk

Hlutverk

Einstök gestrisni

Við erum ávallt gestrisin
Hlutverk okkar er skýrt. Við veitum alltaf framúrskarandi gestrisni. Hún er ekki bara eitthvað sem við gerum, hún er það sem við erum. Við viljum alltaf fara fram úr væntingum gesta okkar, skapa ógleymanlegar minningar og veita öllum sérstaka athygli. Gestirnir okkar geta ávallt treyst því að einstök gestrisni sé leiðarljós í þjónustunni sem við veitum.

Icon Values Framtidarsyn

Framtíðarsýn

Að skapa dýrmætar upplifanir á heillandi áfangastöðum

Við sköpum ógleymanlegar upplifanir
Við leggjum áherslu á öflugan vöxt keðju gæðahótela og þjónustu í öllum landshlutum og að bjóða gestum okkar ógleymanlegar upplifanir. Hvert hótel er einstakt og býður ekki aðeins upp á gistirými heldur upplifanir sem aldrei gleymast.

Við erum leiðandi í sjálfbærni
Sem stærsta hótelkeðja landsins viljum við vera fyrirmynd í sjálfbærri ferðaþjónustu. Fimm ára sýn okkar er skýr: Við ætlum að vera leiðandi í sjálfbærni um leið og við bjóðum gestum okkar upp á einstakar upplifanir á stórfenglegum áfangastöðunum í stórbrotnu íslensku landslagi.

Framtíðin byggist á fólkinu okkar
Við erum samfélagslega ábyrg og hugsum vel um starfsfólkið okkar. Við viljum vera fyrsta val hæfileikaríks fólks sem stefnir á frama í hóteliðnaðinum. Við sýnum umhyggju og viljum að fólk geti vaxið í starfi. Við leggjum áherslu á fjölbreytni, jafnrétti og að öllum finnist þau tilheyra. Þegar starfsfólkið blómstrar, endurspeglast það í upplifun gestanna. 

Við hjálpum samfélögum að dafna
Okkur er annt um nærsamfélög hótelanna okkar og við leggjum áherslu á að þróa starfsemi okkar í sátt við íbúa og náttúru. Við viljum vinna með nágrönnum okkar til að tryggja að upplifun þeirra af hótelunum sé jákvæð og að samfélögin þar sem hótelin eru staðsett dafni samhliða rekstrinum.

Icon Values Aherslur

Áherslur

Einstök upplifun gesta
Við leggjum okkur fram um að skapa ógleymanlegar minningar fyrir gesti okkar, taka hlýlega á móti þeim og veita smáatriðum athygli. Öll samskipti, þjónusta og dvöl hvers einasta gests ættu aldrei að líða úr minni svo gestir okkar verði sendiherrar okkar. 

Öflug markaðsstaða og sterkt vörumerki
Með því að byggja upp traust, viðurkenningu og varanleg tengsl við gesti, samstarfsaðila og samfélög sköpum við verðmæti sem nær lengra en fjárhagslegan árangur. Þessi styrkur gerir okkur kleift að fylgja markmiðum okkar, nýta tækifæri og bjóða framúrskarandi upplifanir sem sýna hver við erum og hvert við stefnum.

Sjálfbær vöxtur
Við trúum því að raunveruleg sjálfbærni byggist á traustri fjárhagslegri grunnstoð. Með öflugum og arðbærum rekstri tryggjum við markmið okkar um að draga úr vistsporinu, styðja við vistkerfi í kringum hótelin okkar og bjóða upp á gestrisni sem verndar áfangastaði sem eru okkur svo dýrmætir. Á sama tíma viljum við fjárfesta í starfsfólki, fasteignum og umhverfi okkar.

Nýsköpun
Við ætlum okkur að virkja kraft tækninnar til að bæta upplifun gesta, einfalda reksturinn og auka nýsköpun. Með því að nýta nýja tækni og stafrænar lausnir getum við sett markið hærra hvað varðar þægindi og framúrskarandi hótelþjónustu.

IH Strategic Diagram 2026 IS