Komið og njótið glæsilegs jólahlaðborðs í hátíðarsal Hótel Reykjavík Grand. Einstök matarupplifun sem kemur með jólin til þín.
Dagsetningar
- 11. desember - Borðhald hefst kl. 19:30
- 12. desember Borðhald hefst kl. 19:00
Verð: 16.900 kr á mann.
Happy Hour er á barnum frá kl. 16:00 – 18:00.
Til að bóka vinsamlegast sendið á: radstefnur.grand@hotelreykjavik.is
Lágmarksfjöldi: 8 manns (8-12 manna borð)
Jólahlaðborð fyrir stærri hópa í sér sal
Einnig er hægt að bóka jólahlaðborð í sér sal fyrir stærri hópa, 50 manns eða fleiri. Vinsamlegast sendið fyrirspurnir á: radstefnur.grand@hotelreykjavik.is
Skilmálar
- Fyrirframgreiðsla á mat. Drykkir eru greiddir á staðnum.
- Komi til forfalla þarf beiðni um endurgreiðslu að berast radstefnur.grand@hotelreykjavik.is skriflega að minnsta kosti 48 klukkustundum fyrir viðburð.
- Starfsfólk áskilur sér rétt til að vísa gestum á brott vegna ósæmilegrar eða ógnandi hegðunar, ölvunar eða brota á öryggisreglum hótelsins.
- Hótelið ber ekki ábyrgð á persónulegum eigum gesta sem týnast eða skemmast né á slysum sem verða vegna gáleysis gesta.
Við hlökkum til að sjá þig!