Magnað í Mývatnssveit.
Gisting í standard herbergi með morgunverði - tveggja rétta kvöldverður - aðgangur í Jarðböðin við Mývatn ásamt drykk að eigin vali fyrir tvo.
Njótum lífsins í einstakri náttúru með útsýni yfir Mývatn. Frábær kvöldverður, notalegt hótelherbergi og róleg heilsustund í notalegum jarðböðum. Innifalið í tilboðinu er einnar nætur gisting fyrir tvo á Fosshótel Mývatni ásamt morgunverðarhlaðborði, tveggja rétta kvöldverði á hótelinu og aðgangi í Jarðböðin við Mývatn.
Fosshótel Mývatn er glæsilegt hótel sem er hannað af verðlaunaarkitektum Basalt. Við hönnun og byggingu þess var nánast eingöngu notast við umhverfisvænt byggingarefni og er hótelið í fullkomnu samrými við umhverfi sitt. Á jarðhæð hótelsins er að finna einstakan veitingastað með útsýni yfir hina stórfenglegu náttúru Mývatns og á efstu hæðinni er gufubað fyrir gesti. Á Fosshotel Mývatni bjóðum við upp á sælkeramatseðil þar sem megin uppistaðan er íslenskt hráefni. Komdu og prófaðu matargerð eins og hún gerist best.
Matseðill:
Í aðalrétt er val á milli
Grilluð lambamjöðm með spergilkáli, smjörsoðnu hvítkáli og skógarberjasósu
eða
Bleikju frá Haukamýri með gulrótum, smælki og hollandaise sósu
Eftiréttur
Súkkulaðikaka með söltuðum heslihnetum, rúsínum og hindberjaís
Jarðböðin við Mývatn eru ein vinsælasta afþreying Norðurlands og henta öllum sem vilja njóta þess að vera í beinni snertingu við náttúruna, slaka á og endurnæra líkama og sál. Boðið er upp á náttúruleg gufuböð, baðlón og heitan pott.
Einstakt tilboð fyrir tvo á aðeins 38.900 kr.
Nánar
- Tilboðið gildir okt til/með apríl 2023
- Uppfærsla í Lake View herbergi 3.000 kr.
- Uppfærsla í svítu 20.000 kr.
- Auka nótt með morgunverði 16.900 kr.
Þetta tilboð miðast aðeins við eina nótt. Ef óskað er eftir að bóka tvær nætur eða fleiri, þá þarf að hafa samband við Fosshótel Mývatn í síma 453 0000 eða senda tölvupóst á myvatn@fosshotel.is