Íslandshótel hf. taka að sér rekstur tveggja sögufrægra hótela í Reykjavík
Íslandshótel hafa undirritað leigusamninga við Reiti fasteignafélag hf. um rekstur tveggja hótela í Reykjavík frá og með 1. september 2026. Annars vegar þar sem nú er Hilton Reykjavík Nordica á Suðurlandsbraut og hins vegar þar sem nú er Reykjavík Natura Hotel á Nauthólsvegi.

Mynd: Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga, greininga og viðskiptaþróunar hjá Reitum, Svana Huld Linnet, framkvæmdastjóri viðskiptavina hjá Reitum, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, Ólafur D. Torfason, stofnandi og stjórnarformaður Íslandshótela og Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.
Um er að ræða rótgróin og sögufræg hótel sem gegnt hafa mikilvægu hlutverki í íslenskri ferðaþjónustu til fjölda ára. Á Hilton Reykjavík Nordica eru 251 herbergi og á Reykjavík Natura Hotel 220 herbergi. Reitir og Íslandshótel munu í samstarfi ráðast í endurbætur á hótelunum með það að markmiði að auka gæði og aðdráttarafl þeirra. Endurbæturnar munu meðal annars fela í sér endurnýjun stórs hluta hótelherbergja.
Íslandshótel munu jafnframt sjá um veitingarekstur á báðum hótelum, en þar eru nú starfræktir veitingastaðirnir VOX Brasserie & Bar og Satt Restaurant.
Lögð verður rík áhersla á að undirbúningur og yfirfærsla gangi sem best fyrir sig gagnvart starfsfólki, gestum og samstarfsaðilum. Íslandshótel munu vinna með hlutaðeigandi aðilum að tryggja eins góða samfellu og kostur er fyrir gesti sem eiga bókanir eftir 1. september 2026.

„Það er stórt og spennandi skref fyrir Íslandshótel að taka við rekstri þessara sögufrægu hótela sem sett hafa mark sitt á íslenska ferðaþjónustu í áratugi,“ segir Ólafur D. Torfason, stofnandi og stjórnarformaður Íslandshótela.
„Við hlökkum til að bjóða starfsfólkið velkomið í okkar hóp og vinna áfram að því að veita gestum hótelanna framúrskarandi þjónustu,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.
Íslandshótel er leiðandi félag í íslenskri ferðaþjónustu og rekur 17 hótel með um 2.000 herbergjum víðsvegar um landið undir vörumerkjunum Fosshótel og Hótel Reykjavík. Kjarnastarfsemi félagsins er hótel- og veitingarekstur. Félagið á jafnframt stóran hluta þeirra fasteigna sem hýsa starfsemina, sem styrkir fjárhagsstöðu þess og eykur stöðugleika. Með þessum leigusamningum við Reiti mun hótelum í rekstri félagsins fjölga í 19.