Íslandshótel hlutu hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2026

Íslandshótel hlutu Hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2026 fyrir framúrskarandi árangur og leiðandi hlutverk í sjálfbærni og ábyrgum rekstri í íslenskri ferðaþjónustu.

Award 2

Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Grósku, á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, af Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Dómnefnd valdi Íslandshótel úr hópi sterkra tilnefninga, þar sem fyrirtækið þótti skara fram úr fyrir heildstæða og markvissa nálgun á sjálfbærni.

Í rökstuðningi dómnefndar kom fram að sjálfbærni sé rótgróinn hluti af starfsemi Íslandshótela og endurspeglist skýrt í stefnu, daglegum rekstri og ákvarðanatöku. Þá var sérstaklega bent á að fyrirtækið hafi ekki einungis fylgt þróun í átt að ábyrgari ferðaþjónustu, heldur einnig haft mótandi áhrif á greinina með því að setja viðmið og sýna raunverulegan árangur.

Íslandshótel er leiðandi fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu og rekur hótel víðs vegar um landið. Öll hótel félagsins hafa hlotið alþjóðlega Green Key umhverfisvottun, sem staðfestir skuldbindingu þess til ábyrgrar nýtingar auðlinda og sjálfbærs rekstrar.

Davíð Torfi Ólafsson forstjóri Íslandshótela veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd Íslandshótela, ásamt samstarfsfólki sínu, þeim Ernu Dís Ingólfsdóttur framkvæmdastjóra mannauðs- og gæðasviðs, Hrund Hauksdóttur framkvæmdastjóra fjármálasviðs og Lijing Zhou yfirmanni sjálfbærnimála.

„Þessi viðurkenning er okkur afar dýrmæt og hvetur okkur til að halda áfram á þeirri vegferð að þróa ferðaþjónustu sem byggir á ábyrgð, gæðum og langtímahugsun,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu fyrirtækisins.

Árangurinn er fyrst og fremst tilkominn vegna starfsfólks Íslandshótela, sem með fagmennsku, samvinnu og metnaði leggur grunn að sjálfbærri framtíð ferðaþjónustu á Íslandi.