Samningurinn markar upphaf spennandi samstarfs sem byggir á sameiginlegri sýn um framúrskarandi árangur, öflugt liðsheildarstarf og að skapa eftirminnilega upplifun víðs vegar um landið. Sem eitt af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði gistinga og ferðaþjónustu er Íslandshótel stolt af því að styðja við íslenska knattspyrnu og standa með KSÍ í að efla íþróttina og hvetja komandi kynslóðir til þátttöku.
Við hlökkum til að vinna náið með KSÍ, styðja við íslensku landsliðin og fagna mörgum eftirminnilegum augnablikum saman á komandi árum.