Fara á efnissvæði

Skjálfandi

Hámarksfjöldi350
Stærð í fm.345
Lengd20,5
Breidd16,8
Hæð4,1
Fosshotel Húsavík Skjálfandi
Fosshotel Húsavík Skjálfandi
Mynd 1 af 2
Skjálfandi

Skjálfandi stærsti og glæsilegasti veislusalur Fosshótel Húsavík og kjörinn vettvangur fyrir stórar veislur, ráðstefnur, móttökur og aðra viðburði. Salurinn býður upp á rúmgott og afar sveigjanlegt rými sem auðvelt er að aðlaga að umfangi og eðli hvers tilefnis.

Salurinn er 345 m² að stærð og rúmar allt að 350 gesti í standandi veislu. Skjálfandi er búinn nútímalegri LED-lýsingu sem gerir kleift að skapa ólíka stemningu eftir tilefni, allt frá fágaðri hátíðlegri umgjörð til líflegra kvöldviðburða. Meðal lýsingarmöguleika er vinsæl norðurljósalýsing, sem hefur vakið mikla athygli og notið sérstakra vinsælda hjá bæði innlendum og erlendum gestum.

Í salnum er einnig fullbúið ráðstefnuhljóðkerfi sem tryggir skýra og vandaða hljóðdreifingu um allt rýmið. Það skapar traustan grunn fyrir fyrirlestra, málþing og annan dagskrárlið þar sem gott hljóð skiptir máli.

Salurinn hentar vel fyrir stærri veislur, ráðstefnur og fagviðburði. Rúmgott rými, sveigjanleg uppsetning og fullbúin tækni skapa góðar aðstæður fyrir fyrirlestra, málþing og fjölbreytta dagskrá – hvort sem um er að ræða einn viðburð eða heilan dag.

Útfærslumöguleikar á sal

Hringborð 200
Kennsla 250
Leikhús 300
Móttaka 350

Tækjabúnaður sem er innifalinn í salarleigu

Wi-Fi Þráðlaust net
Skjávarpi Optoma
Sýningartjald 3,1x2m & 4x2,2m
Ljós Dimmanleg ljós og LED borðar með litavalmöguleikum t.d. norðurljós
Hljóðkerfi Fundarhljóðkerfi

Spurt og svarað