Fara á efnissvæði

Þingey

Hámarksfjöldi70
Stærð í fm.89
Lengd14,8
Breidd5,8
Hæð3,2
Fosshotel Húsavík Þingey
Þingey Fundarsalur

Þingey er rúmgóður salur á Fosshótel Húsavík sem hentar jafnt fyrir fundi, vinnustofur og kynningar sem og einkaveislur, afmæli og móttökur. Salurinn er 89 m² að stærð og býður upp á ýmsar uppstillingar á salnum, sem auðvelt er að laga að þörfum hópsins og eðli viðburðarins.

Í Þingey er hægt að skapa bæði faglega og hlýlega umgjörð fyrir viðburði. Salurinn rúmar allt að 70 manns í leikhúsuppstillingu, 60 manns í kennslustofuuppstillingu og 50 gesti í hringborðsuppstillingu, sem gerir hann vel fallinn fyrir minni ráðstefnur jafnt sem veislur. Þrátt fyrir staðsetningu í kjallara nýtur salurinn dagsbirtu, sem skapar bjart og notalegt andrúmsloft.

Útfærslumöguleikar á sal

Fundarherbergi 36
Hringborð 50
Kennsla 60
U Borð 32
Leikhús 70

Tækjabúnaður sem er innifalinn í salarleigu

Wi-Fi Þráðlaust net
Skjávarpi Epson
Sýningartjald B 3,1m x H 2m
Lýsing Hefðbundin lýsing, ekki dimmanleg
Hljóð Fundarhljóðkerfi

Spurt og svarað