Fara á efnissvæði
Fosshotel Núpar Superior Double Room
Exterior of Fosshotel Núpar
Exterior of Fosshotel Núpar
Exterior of Fosshotel Núpar
Fosshotel Núpar Lobby
Restaurant at Fosshotel Núpar
Fosshotel Núpar Breakfast
Fosshótel Núpar Standard Double Room
Restaurant at Fosshotel Núpar
Reception at Fosshotel Núpar
Mynd 1 af 10
Superior Double Herbergi

Fosshótel Núpar er við hringveginn, í miðju eystra Eldhrauni, en þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Vatnajökul og Lómagnúp.

Mikil náttúrufegurð er í nágrenni hótelsins og örstutt í einstakar náttúruperlur, svo sem Lakagíga, Systrastapa, Dverghamra, Lómagnúp, Núpsstað, Skaftafell og Jökulsárlón. Á hótelinu er að finna veitingahús sem býður upp á magnað útsýni yfir hraunbreiðurnar. Veitingahúsið tekur allt að 90 gesti í sæti.

Frá og með ágúst 2024 hafa öll hótelin okkar hlotið Green Key vottun frá FEE (e. Foundation for Environmental Education), sem gerir okkur að fyrstu sjálfbærnivottuðu hótelkeðjunni á Íslandi.

Fosshotel Nupar Superior Double Room

Herbergi

99 herbergi í miðju í hrauni frá einu stærsta eldgosi í sögunni.

Á Fosshótel Núpum bjóðum við upp á falleg og stílhrein herbergi með öllum þeim þægindum sem fylgja 3 stjörnu hóteli. Að auki fylgir öllum herbergjum lítill sólpallur sem veitir þér aðgengi að stórbrotinni náttúru í kringum hótelið og er tilvalinn fyrir þá sem vilja njóta morgun- eða kvöldsólarinnar.

sjá nánar
Fosshotel Núpar Restaurant

Veitingastaður

Á Fosshótel Núpum má finna heillandi veitingastað með stórum gluggum og útsýni yfir eystra Eldhraun.

Á Fosshótel Núpum er veitingastaður sem býður fjölbreyttan matseðil. Eftir langan dag á Suðurlandinu er tilvalið að njóta notalegrar kvöldstundar í fallegu umhverfi og gæða sér á réttum þar sem ferskt íslenskt hráefni er í forgrunni.

Sjá nánar

Svör við algengum spurningum