Fara á efnissvæði

Gullfoss

Hámarksfjöldi220
Stærð í fm.246
Lengd25,10
Breidd13
Hæð2,7
Gullfoss B Conference Room at Fosshotel Reykjavík
Gullfoss - Fosshotel Reykjavik
Gullfoss - Fosshotel Reykjavik
Gullfoss - Fosshotel Reykjavik
Gullfoss - Fosshotel Reykjavik
Gullfoss - Fosshotel Reykjavik
Mynd 1 af 8
Gullfoss B ráðstefnusalur á Fosshótel Reykjavík

Gullfoss er stærsti fundar- og ráðstefnusalur Fosshótel Reykjavík. Hægt er að skipta salnum upp í tvo sjálfstæða sali, Gullfoss A og Gullfoss B, eftir stærð og þörfum viðburðar. Gluggar hleypa inn náttúrulegri birtu og dimmanleg lýsing gerir auðvelt að stilla lýsingu eftir uppsetningu og stemningu.

Í heild sinni rúmar Gullfoss allt að 220 manns og hentar vel fyrir ráðstefnur, árshátíðir, sýningar, vörukynningar og móttökur. Þegar salnum er skipt upp hentar Gullfoss A vel fyrir meðalstóra viðburði, á meðan Gullfoss B nýtist sérstaklega vel fyrir minni fundi, vinnustofur og námskeið.

Með þessum möguleikum hentar Gullfoss jafnt fyrir einn stóran viðburð sem og fleiri smærri sem fara fram samhliða. Salurinn er því góður kostur þegar fagleg umgjörð og miðlæg staðsetning skipta máli.

Athygli er vakin á því að breytingargjald er rukkað fyrir aðra uppsetningu en hringborð

Útfærslumöguleikar á sal

Hringborð 170
Kabarett 130
Kennsla 160
Leikhús 220
U Borð 48
Fundarherbergi 50
Móttaka 220

Gullfoss A

Kennsla 110
Leikhús 150
Kabarett 84
U Borð 32
Fundarherbergi 40
Hringborð 120
Móttaka 150

Gullfoss B

Kennsla 50
Leikhús 60
Kabarett 32
U Borð 20
Fundarherbergi 26
Hringborð 40
Móttaka 60

Tækjabúnaður sem er innifalinn í salarleigu

Wi-Fi Þráðlaust net
Skjárvarpi Epson 3LCD - 5500 lumen
Sýningartjald x2 H 2,35 m x B 1,4 m
Hljóðkerfi Fundarhljóðkerfi
Lýsing Crestron - almenn salarlýsing, sviðslýsing auk lampa á borðum

Spurt og svarað