Salur A+B á Hilton Reykjavík býður upp á rúmgóða og glæsilega umgjörð fyrir ráðstefnur, árshátíðir, vörukynningar og fjölbreytta viðburði. Salurinn er staðsettur á fyrstu hæð hótelsins og er 528 m² að stærð. Ríkuleg dagsbirta skapar bjart og notalegt andrúmsloft og sveigjanleg aðstaða býður upp á fjölbreytta möguleika við skipulagningu viðburða.
Salurinn er búinn nútímalegum ráðstefnubúnaði, þar á meðal innbyggðum skjávarpabúnaði í lofti, þremur sýningartjöldum, ráðstefnulýsingu og hljóðkerfi. Ræðupúlt er einnig til staðar og eitt sýningartjald og einn skjávarpi eru innifalin í salarleigu.
Við salinn er 440 m² móttöku- og sýningarsvæði sem er innifalið í leigu og hentar vel fyrir skráningu gesta, kaffiveitingar, móttökur og sýningarhald.
Með rúmgóðri aðstöðu, fjölbreyttum uppstillingarmöguleikum og nútímalegum búnaði hentar salur A+B jafnt fyrir stóra fyrirtækjaviðburði sem hátíðleg tilefni.
Útfærslumöguleikar á sal
Tækjabúnaður sem er innifalinn í salarleigu
Spurt og svarað
-
- Skjávarpar/skjáir og sýningartjöld
- Púlt og hljóðnemi
- Wi-Fi
- Hljóðkerfi fyrir talað mál
- Þrif, borðbúnaður, dúkar, þjónusta
- Uppsetning hringborð (ath auka kostnaður er ef uppsetning er önnur)
- Tæknimaður þarf að vera til staðar þegar aðalsalir A og B eru bókaðir. Tímagjald gildir.
-
Já, hægt er að fá auka tæknibúnað gegn gjaldi. Vinsamlegast hafið samband fyrir nánari upplýsingar.