Gerðu þér dagamun á aðventunni og njóttu jólanna á Lauf Bistro, sem er staðsett á Hótel Reykjavík Öskju. Yfir hátíðarnar tekur Lauf á sig jólalegan blæ með fjölbreyttum jólahlaðborðum og jólabröns þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Komdu saman með fjölskyldu, vinum eða samstarfsfólki og njóttu góðs matar og samveru yfir hátíðarnar.
Jólabröns - Nánari upplýsingar
Ómar Stefánsson, yfirkokkur á Hótel Reykjavík Öskju, býður upp á glæsilegan og hefðbundinn jólabröns á Lauf Bistro.
Dagsetningar:
21.-22. & 28.-29. nóvember, 4., 5. & 6. desember & 11. desember til 1. janúar
kl.11:30 – 14:00
Jólasveinn kemur í heimsókn á laugardögum og sunnudögum til 20. desember.
Verð: 8.600 kr. fyrir fullorðna | 5.900 kr. fyrir börn (6–12 ára) | Frítt fyrir börn yngri en 6 ára.
Jólahlaðborð föstudaga - laugardaga - Nánari upplýsingar
Það svífur jólaandi yfir dásamlegum réttum á okkar margrómaða jólahlaðborði, alla föstudaga og laugardaga frá 21. nóvember til 19. desember.
Ómar Stefánsson, yfirmatreiðslumaður á Hótel Reykjavík Öskju, býður upp á glæsilegan og hefðbundinn jólahlaðborð á Lauf Bistro.
Dagsetningar: Alla föstudaga og laugardaga frá 21. nóvember til 19. desember
Húsið opnar kl. 18:00 og borðhald hefst kl. 19:00.
Létt og notaleg djass-jólatónlist undir borðhaldinu í flutningi Aðalheiðar Þorsteinsdóttur, Þorsteins Jónssonar og Hjálmars Karls Guðnasonar.
Verð: 16.900 kr. fyrir fullorðna | 9.900 kr. fyrir börn (6–12 ára) | Frítt fyrir börn yngri en 6 ára
Bóka borð á Jólahlaðborð föstudaga - laugardaga
Desemberhlaðborð - Nánari upplýsingar
Lauf er kominn í hátíðarbúninginn og býður ykkur velkomin á ljúffengt desemberkvöldverðarhlaðborð.
Dagsetningar: Sunnudaga – fimmtudaga: 29. nóvember – 17. desember og alla daga: 20. desember - 30. desember. Athugið að hlaðborðið verður ekki í boði þann 24. og 25. desember.
kl. 18:00 – 21:00
Verð: 9.900 ISK fyrir fullorðna | 3.900 ISK fyrir börn (6–12 ára) | Frítt fyrir börn yngri en 6 ára
Hátíðarkvöldverðarhlaðborð - Nánari upplýsingar
Við tökum á móti ykkur með freyðivínsglasi áður en þið njótið vandaðs hlaðborðs hlaðið klassískum íslenskum forréttum, aðalréttum og ómótstæðilegum kræsingum, sem yfirmatreiðslumaðurinn okkar, Ómar Stefánsson, töfrar fram.
Í boði aðfangadag, jóladag og gamlárskvöld
kl. 18:00 - 21:00
Verð: 19.900 kr. fyrir fullorðna | 9.900 kr. fyrir börn (6–12 ára) | Frítt fyrir börn yngri en 6 ára
Bóka borð á Hátíðarkvöldverðarborð
Skötuhlaðborð - Nánari upplýsingar
Við bjóðum ykkur velkomin í hið árlega skötuhlaðborð okkar á Lauf Bistro á Þorláksmessu.
Húsið fyllist jafnan af skötuunnendum þennan dag og þykir mörgum jólin byrja þar.
Ásamt skötunni bjóðum við upp á fjölbreytta jólarétti við allra hæfi á hlaðborðinu.
Verð: 9.200 kr. fyrir fullorðna | 4.900 kr. fyrir börn (6–12 ára) | Frítt fyrir börn yngri en 6 ára