Íslandshótel verða aðalbakhjarl Regnbogafjölskyldu Samtakanna ’78
Íslandshótel og Samtökin ’78 hafa undirritað, á Hinsegin dögum, þriggja ára samstarfssamning þar sem Íslandshótel verða aðalbakhjarl Regnbogafjölskyldu Samtakanna ’78.

Markmið samstarfsins er að styrkja starfsemi Samtakanna ’78 og styðja við réttindi og velferð hinsegin fólks á Íslandi. Samstarfið er jafnframt liður í samfélagslegri ábyrgð og sjálfbærnivegferð Íslandshótela.
Sem aðalbakhjarl munu Íslandshótel styðja við starf samtakanna bæði með beinum fjárhagslegum stuðningi og þjónustu.
„Við erum afar stolt af því að ganga til þessa samstarfs við Samtökin ’78. Fyrir okkur snýst þetta ekki eingöngu um stuðning við eitt verkefni, heldur um að taka skýra afstöðu með jöfnum tækifærum, virðingu og réttinum til að vera maður sjálfur. Við viljum leggja okkar af mörkum til að styðja við mannréttindi og velferð einstaklinga.“
Davíð T. Ólafsson, forstjóri Íslandshótela
Samstarfið byggir einnig á þeirri vegferð sem Íslandshótel hafa verið á í málefnum fjölbreytileika og inngildingar. Íslandshótel hafa hlotið Regnbogavottun Samtakanna ’78 og með nýja samstarfinu er stigið enn frekara skref í þeirri vegferð.
Samstarfið mun jafnframt skapa tækifæri fyrir Íslandshótel og Samtökin ’78 til að vinna saman að viðburðum og verkefnum á samningstímanum.
„Það er okkur sannur heiður að fá Íslandshótel sem fyrsta aðalbakhjarl nýrrar Regnbogafjölskyldu. Fyrirtækið hefur sýnt sanna stöðu með öllu hinsegin fólki bæði með því að vera fyrsta hótelkeðjan til að verða hinsegin vottuð einnig fyrsta fyrirtækið inní Regnbogafjölskduna.“
Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78
Íslandshótel hlakka til samstarfsins og þess að leggja sitt af mörkum til áframhaldandi starfs Samtakanna ’78 og Regnbogafjölskyldunnar. 🌈