Fara á efnissvæði
Fosshotel Barón breakfast room
Fosshotel Baron Bar
Fosshótel Barón
Fosshótel Barón
Fosshotel Barón
Fosshotel Barón Lounge
Fosshotel Barón Standard Double or Twin Room
Fosshotel Barón Breakfast Room
Breakfast Buffet
Breakfast Buffet
Mynd 1 af 10
Fosshotel Barón breakfast room

Fosshótel Baron

Fosshótel Baron

Þriggja stjörnu hótel við sjávarsíðuna. Í göngufæri við Laugaveginn, Hörpu og aðra skemmtilega staði.

Uppruna Fosshótels Barons má rekja aftur til 19. aldar en hluti hótelsins var byggður árið 1898 og var þar með fyrsta steinsteypta byggingin í Reykjavík.

Franskur baron kom hingað til lands og lét byggja húsið, við Barónsstíg 4, en hann hugðist stofna þar fyrsta mjólkurbúið í Reykjavík. Bæði Barónsstígur og Fosshótel Baron voru nefnd eftir franska baroninum.

Í þessari sögufrægu byggingu við sjávarsíðuna má finna þriggja stjörnu hótel í göngufæri við Laugaveginn, tónlistarhúsið Hörpu og aðra skemmtilega og áhugaverða staði í miðbæ Reykjavíkur. Á Fosshótel Baron eru 120 herbergi og hentar hótelið einkar vel fyrir einstaklinga, fjölskyldur sem og hópa.

Frá og með ágúst 2024 hafa öll hótelin okkar hlotið Green Key vottun frá FEE (e. Foundation for Environmental Education), sem gerir okkur að fyrstu sjálfbærnivottuðu hótelkeðjunni á Íslandi.

 

Fosshotel Baron Deluxe Room

Herbergi

Rúmgóð herbergi sem henta sérstaklega vel fyrir fjölskyldur og hópa.

120 herbergi í miðbæ Reykjavíkur, fullkomin staðsetning fyrir dvöl í borginni.

Sjá nánar

Svör við algengum spurningum