Fara á efnissvæði

Axlarfoss

Hámarksfjöldi104
Stærð í fm.87
Lengd10,9
Breidd8
Hæð3,1
Axlarfoss Conference Room at Fosshotel Vatnajökull
Axlarfoss Conference Room at Fosshotel Vatnajökull
Axlarfoss Conference Room at Fosshotel Vatnajökull
Mynd 1 af 3
Axlarfoss Ráðstefnusalur á Fosshótel Vatnajökli

Axlarfoss er glæsilegur ráðstefnu- og fundarsalur sem hentar jafnt fyrir stærri sem minni samkomur, sem og fjölbreyttar veislur á borð við fermingarveislur, einkasamkvæmi og aðra viðburði. Salurinn er bjartur og vel hannaður, með stórfenglegu útsýni yfir Vatnajökul. Útgengt er úr salnum á stóran pall þar sem tilvalið er að bjóða upp á drykki og léttar veitingar þegar veður leyfir.

Salurinn býður upp á ýmsar uppstillingar sem auðvelt er að laga að þörfum hópsins og eðli viðburðarins. Hægt er að stilla upp hringborðum fyrir veislur og viðburði, sem og fundauppstillingum á borð við boardroom, U-uppstillingu, fyrirlestrar- eða bíóuppstillingu. Axlarfoss rúmar allt að um 20 manns í fundarumgjörð og allt að rúmlega 100 gesti þegar salurinn er nýttur fyrir stærri viðburði.

Útfærslumöguleikar á sal

Fundarherbergi 20
Hringborð 56
Kennsla 56
U Borð 24
Leikhús 104

Tækjabúnaður sem er innifalinn í salarleigu

Wi-Fi Þráðlaust net
Skjávarpi NEC NP16LP - 3.000 lumen
Sýningartjald B 280 x H 220 cm
Hljóðkerfi Bose
Lýsing Led loftljós, ekki dimmanleg

Spurt og svarað