Fundarherbergi E er 50 m² að stærð og er staðsettur á annarri hæð. Salurinn er stílhreinn og nútímalegur, með dökkum tónum og hönnun sem sækir innblástur í íslenskt hraunlandslag. Góð dagsbirta skapar bjart og notalegt umhverfi sem hentar vel fyrir minni fundi, vinnustofur og hópavinnu í tengslum við stærri ráðstefnur.
Í salnum er innbyggður skjávarpi og sýningartjald ásamt hljóðkerfi sem tryggir góðan hljómburð við fundi og kynningar. Fundarsalur E sameinar sérstæða hönnun og góða tækniaðstöðu og hentar vel fyrir fjölbreytta fundi og umræður.
Útfærslumöguleikar á sal
Tækjabúnaður sem er innifalinn í salarleigu
Spurt og svarað
-
- Innbyggður skjávarpi og sýningartjald
- Wi-Fi
- Hljóðkerfi fyrir talað mál
- Þrif og þjónusta
- Uppsetning: U borð (ath auka kostnaður er ef uppsetning er önnur)
-
Já, hægt er að fá auka tæknibúnað gegn gjaldi. Vinsamlegast hafið samband fyrir nánari upplýsingar.